Jááá!!!!! Langaði að setja inn smá pistil um sjálfa mig
Hehehehe....
En allavega ég heiti semsagt Bryndís Erlingsdóttir og er frá þeim blessaða bæ sem kenndur er við hnakka eða öðru nafni Selfoss
Þar er ég fædd og uppalin og held barasta að ég sé besta skinn
Ég útskrifaðist af Sjúkraliðabraut með viðbótarnámi til Stúdentsprófs frá Fjölbrautaskóla Suðurlands, Selfossi þann 17.desember 2005. Í janúar 2006 fór ég út í lýðháskóla, nánar tiltekið Den Rytmiske Højskole og var þar eina önn eða rúma 5 mánuði frá jan-jún að læra söng. Þegar ég kom heim á klakann aftur fór ég að vinna á Landspítalanum sem Sjúkraliði.
Núna bý ég í Kaupmannahöfn á Østerbro og stunda nám við Sygepleje- og Radiografskolen i Herlev. Ég stefni á að útskrifast þaðan vorið 2010 sem Hjúkurnarfræðingur. Ég á mér marga drauma og langar að gera margt. Mig langar t.d. að gera mikið meira í tónlistinni, fara í tónlistarskóla og læra smá meira í söng, samt ekki klassískan. Mig langar líka að fara í framhaldsnám í Hjúkkunni og læra Svæfingarhjúkrun. En maður er ennþá ungur þannig að það er margt í boði.
Ég kem úr 6 manna fjölskyldu og við erum 4 systurnar og ég er sú yngsta
Sú elsta heitir Karen og er menntuð sem þroskaþjálfi, hún á mann sem heitir Birgir og 3 börn sem eru btw bara mestu dúllur í heimi og heita Erlingur Örn, Kolbrún Jara, og Gunnar Hrafn. Næst kemur Hrönn og hún er trúlofuð honum Steinari og hún er líka þroskaþjálfi, þau eiga saman 2 yndislega drengi, tvíbura, sem heita Vignir og Hjörvar og eru algjörar perlur. Næst yngsta og næst minnsta systir mín heitir Inga og hún er með BS.c í byggingaverkfræði og stefnir á mastersnám í haust í Glasgow. Mamma og pabbi heita Guðrún og Erlingur, mamma vinnur á leikskóla og pabbi er smiður (hann á sko að byggja mitt hús
).
Mig langar alveg rosalega mikið að sækja um í tónlistarskóla sem er kallaður MGK þarna úti í danaveldi með hjúkkunáminu. Allavega ætla ég að spreyta mig á inntökuprófinu þar.
En hvað um það, þetta var bara svona smávegis um mig...