Djassband Suðurlands

Auglýsing

Viska....

Life is to short to wake up in the morning with regrets. So love the people who treats you right, forget about the ones who don´t.....

Belive that everything happens for a reason . If you get a chance, take it. If it changes your life, let it. Nobody said it´d be easy, they just promised it would be worth it....

Prófíll

  • Nafn: Bryndís Erlingsdóttir
  • Netfang: líka msnið mitt bryndise85@gmail.com
  • Staður: Kaupmannahöfn
  • Atvinna: Sjúkraliði/ Hjúkrunarfræðinemi
  • Hjúskaparstaða: Einhleyp
  • Um mig: Fædd á því herrans ári 1985 nánar tiltekið þann 12.nóvember! Er fædd og uppalin á Selfossi og er yngst af 4 systrum. Er menntuð sem Sjúkraliði og er líka búin með Stúdentinn frá Fjölbrautaskóla Suðurlands. Bý núna í Danmörku, nánar tiltekið Kaupmannahöfn og stunda nám við Sygepleje- og Radiografskolen i Herlev og er að læra að verða Hjúkrunarfræðingur:) Langar svo að gera aðeins meira í tónlistinni, fara í smá söngnám hérna úti og svo langar mig líka ad læra Svæfingarhjúkrun:)

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

Bloggíbloggí

03. maí 2009 klukkan 13:19
Jámm.... ég var búin að blogga hérna um daginn og svo bara alltí einu hviss, bang, búmm þá var það horfið mér til mikillar furðu og GREMJU!! Vá ég fór bara í fýlu út í bloggið og nennti ekki að tala meira við það, það sem eftir var vikunnar.

En ég og Fina lentum í smá pípulagningarvandræðum um daginn, eða réttara sagt fyrir viku síðan. Vaskurinn var búinn að vera alveg ótrúlega mikið stíflaður e-ð og ég var e-ð að hamast á niðurfallinu með okkar fína drullusokk. Svo allt í einu, plúbb!! Og það kom vatn flæðandi innan úr skáp og útum allt eldhúsgólf, og lyktin!!! OJJJBARA!!! Fina hringdi strax í mömmu sína til að spyrja hana hvort að hún vissi um e-n pípara til að koma að plögga þetta fyrir okkur, en í staðin fyrir það þá sagði hún okkur bara hvað við ættum að gera og það endaði þannig að við tókum öll rörin í sundur undir vaskinum og það var vel skiljanlegt að hann hafi verið stíflaður. Þá hafa þessir „yndislegu" iðnaðarmenn okkar verið það sætir í sér að hella fúusementinu (eða hvað sem það nú heitir, pabbi veit það betur), í vaskinn okkar sem var auðvitað ekki í það mikilli notkun á þessu tímabili, þannig að það hefur náð að harðna svona fallega, að þegar við tókum rörin í sundur og skoluðum þau þá komu bara feitir „steypuklumpar" útúr rörunum og svona líka rosalega mikið illa lyktandi!!! Við ætluðum svo aldrei að fá helvítis rörin til að hætta að leka en það tókst loksins og núna rennur bara ljúft niður í niðurfallið, þvílíkir snillingar sem við erum Smile Verð nú samt að viðurkenna að það hefði verið voða ljúft að hafa hann pabba hérna hjá mér til að hjálpa okkur Smile

En annars er allt bara svona við sama heygarðshornið. Sólin skín bara meira en minna, reyndar doldið skýjað í dag og spáð skúrum en það er nú bara gott fyrir gróðurinn. Við fórum í Fælledparken á föstudaginn 1.maí, Theis vinur minn var að spila í einu tjaldinu þar, en það er fullt af tjöldum þarna frá stjórnmálaflokkum og verkalýðsfélögum og svo eru svið þar sem eru ræður og tónlist og svoleiðis, rosa fjör. Það var svo mikið af fólki þarna að það var varla hægt að labba um án þess að labba á einhvern. En ég náði mér allavega í nokkrar freknur og smá lit, þetta mjakast... sko liturinn  Fann mér líka geggjað bikini um daginn sem að ég hreinlega varð bara að fjárfesta mér í, sérstaklega þar sem að það passaði svona fínt.
En annars styttist bara í að ég komi heim eina helgi í maí. Get því miður ekki lofað því að ég eigi eftir að hitta mikið af vinum og kunningjum, enda verð ég bara frá föstudagskvöldi til mánudags og þetta verður frekar bissý helgi. En ég er svona farin að skoða flugför heim í ágúst, er jafnvel að pæla í að koma heim í byrjun ágúst og kanski, bara kanski, kíkja á Þjóðhátíð á sunnudeginum, en það kemur allt saman í ljós bara með tímanum.

En held að ég segi ekki mikið meira í bili.
Bryndís

Heimilisfangið mitt og símanúmer í Danmörku

Steen Billes Gade 7, 4.tv
2100 København Ø
Denmark

Símanúmerið mitt er svo
+45 28 77 43 35

Endilega látið heyra í ykkur elskurnar:)
Lovja Berlings:)

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...