Djassband Suðurlands

Auglýsing

Viska....

Life is to short to wake up in the morning with regrets. So love the people who treats you right, forget about the ones who don´t.....

Belive that everything happens for a reason . If you get a chance, take it. If it changes your life, let it. Nobody said it´d be easy, they just promised it would be worth it....

Prófíll

  • Nafn: Bryndís Erlingsdóttir
  • Netfang: líka msnið mitt bryndise85@gmail.com
  • Staður: Kaupmannahöfn
  • Atvinna: Sjúkraliði/ Hjúkrunarfræðinemi
  • Hjúskaparstaða: Einhleyp
  • Um mig: Fædd á því herrans ári 1985 nánar tiltekið þann 12.nóvember! Er fædd og uppalin á Selfossi og er yngst af 4 systrum. Er menntuð sem Sjúkraliði og er líka búin með Stúdentinn frá Fjölbrautaskóla Suðurlands. Bý núna í Danmörku, nánar tiltekið Kaupmannahöfn og stunda nám við Sygepleje- og Radiografskolen i Herlev og er að læra að verða Hjúkrunarfræðingur:) Langar svo að gera aðeins meira í tónlistinni, fara í smá söngnám hérna úti og svo langar mig líka ad læra Svæfingarhjúkrun:)

Innskráningar kubbur

Leikur dagsins

aðeins 2 dagar beibí:)

13. desember 2007 klukkan 16:47
Já þið lásuð rétt... aðeins 2 dagar þangað til ég lendi á klakanum, á þessum tíma eftir viku verð ég örugglega komin á selfossið og búnað knúsa fólkið mitt vel og vandlegaBrosandi Það á meira að segja að halda 2 böll til heiðurs þess að ég er að koma til íslandsGlottandi hehe.... það er bara ekkert minna en þaðGlottandi persónulega finnst mér að ég eigi að fá ókeypis inn á þessi böll, bara sona í ganniGlottandi 

Ég fór í líkamsbeitingarprófið á mánudaginn og náði því svona líka glimrandi, persónulega hefði ég viljað gera betur, en maður getur svosum alltaf sagt þetta ekki satt??? EN ég náði og ég er bara nokkuð sátt með það, það var engin einkunn, bara staðist eða ekki staðist. En svo vorum við að leggja okkar lokahönd á verkefnið okkar og við náðum því líka, engin einkunn bara staðist eða ekki staðist igenBrosandi og við rúlluðum kynningunni alveg upp í dag, fengum mjög góða dóma frá kennaranum og hún meira að segja benti öllum bekknum á að kíkja á hjúkrunargreininguna sem að ég og Christine gerðum því að hún væri alveg rosalega góð, við vorum ekkert smá stoltar af því auðvitaðBrosandi enda ekki annað hægt..... Þannig að skólinn gengur bara vel. Í byrjun febrúar fer ég svo í verklegt í 10 vikur og þá er bara að sjá hvar maður endar, s.s. á hvaða spítala, við getum valið um 4 og svo kemur í ljós hvað maður fær. Það verður bara spennandi að sjá hvar maður endar.

En það er ekki hægt að segja annað en það að ég sé orðin ansi spennt að koma heim!! Ég og Blaka skiptumst á að senda hvor annarri sms um hvað það séu margir dagar þangað til að ég kem heim... hehe.. frekar skondnar! En ég verð á klakanum í nákvæmlega 20 daga! Ekki slæmt það, svo kemur maður til danaveldis aftur 3.jan og þá verður sko tekið á því í anatomyunni þar sem maður er að fara í próf úr því öllusaman 31.janúar.... úfff.... kvíði doldið fyrir því, en vonandi gengur það allt saman upp.

En svo er bara STÓRA spurningin hvert maður á að fara á laugardaginn. Á maður að fara á O.Fl á Draugabarnum? EÐA!! á maður að fara á Á móti sól í hvíta  húsinu?????

HVAR ER STEMMARINN ÞESSA HELGINA????

Sjáumst eftir 2 DAGA!!!! VÍÍÍÍÍÍÍÍÍI

Bryndís:)

Smá pæling...

09. desember 2007 klukkan 16:44
Er nefninlega að fara í klippingu 18.des á klakanum og er svona að velta því fyrir mér hvað ég eigi að gera....

á ég að halda áfram að vera dökkhærð?
dökkhærðán brilla






















EÐA.....

á ég að skella mér í ljóskuna aftur?

ljós Please, help me.....Glottandi



















Svo er líka spurning hvort að maður eigi bara að leyfa lubbanum að vaxa eða hvort maður eigi að klippa sig e-ð flott???

Endilega kommentið og segið hvað ykkur finnst.... It´s a question about life and deathGlottandi

eða ekki sko, en samt kommentið

kv. Bryndís

LEIIIIÐIIIIIST!!!

06. desember 2007 klukkan 17:47
já mér leiðist..... ég er bara að bíða eftir klukkunni núna.... var í dag í fríi en fór samt út í skóla vegna þess að ég var búin að panta demo stofuna til þess að ég gæti æft mig fyrir prófið sem að ég er að fara í á mánudaginn í líkamsbeitingu vorum 4 að æfa okkur og það gekk bara vel.

Við erum búnar að skila verkefninu okkar um hægðartregðu, kláruðum það í gær og skiluðum því í dag, eigum reyndar ekki að skila því fyrr en á morgum, en það drepur engann að skila verkefni fyrr ef að það er alveg tilbúið, kennarinn sagði allavega að það væri tilbúið til afhendingar þannig að við skelltum því í hólfið hjá henni í dagBrosandi super duper.....

Úrþví að mér leiðist þá fór ég svona að velta fyrir mér alls konar venjum sem maður venur sig á, ég hjóla á hverjum degi yfir 3 einstefnugötur, semsagt þvert yfir þær. En þrátt fyrir að þetta séu EINSTEFNUgötur og bílarnir keyra semsagt bara í eina átt, þá kíki ég alltaf til beggja hliða. Jújú, góður vani svosum en samt þarf maður bara að kíkja í aðra áttina.... Hmmm.... ég virðist ekki getað vanið mig af þessu og ég tek eftir þessu á hverjum degi þegar ég hjóla yfir þessar 3 einstefnugötur og alltaf þegar ég er búin að hjóla yfir þær þá fer ég að hugsa um þetta og pæla aðeins meira í þessu og svo allt í einu kemur lítið spassaglott á mig og ég segi við sjálfa mig í huganum, þú ert nú meiri asninn BryndísGlottandi 

En það eru alveg ótrúlegustu hlutir sem maður getur vanið sig á. T.d daginn sem að skólatöskunni minni var rænt með öllu mínu hafurtaski í þá gat ég ekki búið til hafragraut handa mér um morguninn því að mig vantaði eldfæri til að geta kveikt undir gasinu á eldavélinni. Um leið og ég fattaði þetta þá vissi ég að þetta yrði slæmur dagur því að ég er vön að búa mér til hafragraut í morgunmat.... og viti menn, þetta var einn af verstu dögum sem að ég hef upplifað.

Ég er líka farin að standa mig að því að sletta inn dönskum orðum þegar ég tala íslensku, og meira að segja gleymi ég stundum hvað orðið heitir á íslensku, kommon Bryndís, ég er búin að vera hérna í 3 mánuði. Eins og hún Sólrún tók eftir um daginn þá sagði ég PUHA þegar ég var búin að borða og var rosa södd og PUHA er svona eins og ÚFF hjá íslendingum, en í sannleika sagt þá segi ég rosa mikið PUHA, bæði þegar ég er þreytt, södd, svöng eða bara e-ð....

En nú eru einungis 9 dagar þangað til að ég mæti galvösk á klakann og stefni beint á O.Fl ball þann 15.des á draugabarnum! Ekki spurning um það! Hverjum langar að bjóða mérGlottandi hehe..... Ég er í fúlustu alvöru að slá á fingurnar á mér að byrja ekki að pakka..... Samt var ég að þvo allt af mér áðan! dúdúdúrúdú....

En það er allavega búið að plana smávegis af íslandsdvölinni, það verður klipp og lit 18.des og mig hlakkar ekkert smávegis til þar sem að hárið á mér er svo sítt að ég held að ég hafi ekki haft svona sítt hár síðan ég fermdist, reyndar er það ekki alveg það sítt en sítt erða. Ég ætla að stefna í ljóskuna aftur, semsagt ljósa hárið og svo verður farið út að borða með systrunum 21.des og þar er líka búið að bjóða mér í 25. ára afmæli og líka í fyrirparty og svo á ball.... Hmm..... maður þarf bara að sjá hvað gerist þar, fer allavega út að borða og svo verður restin að ráðast.

Svo var æfing hjá gamla DRH bandinu mínu á mánudaginn og það var svoooo gaman! LOKSINS tónlist!! Pabbi Stifs sagði mér að þeir væru svo glaðir að ég væri flutt hingað út að þeir töluðu ekki um neitt annað þessa dagana. Æjj þeir eru svo miklar dúllur þessir strákar! Svo er búið að bóka gigg einhverntíman í jan eða feb og ég er alveg eiturspennt fyrir því. Æfum einu sinni í viku og þá fær maður sko útrás!! Syngja syngja syngja..... lalalalalalaHlæjandi

En jæja, ég ætla að fara að gera mig fína og sæta. Það er hittingur hjá DRH fólki á Café Blomsten í kvöld og það er allt að stefna í mjög góða mætingu í kvöld, alltaf svo gaman að hitta þessar elskur!!

Snilldar frétt... dó næstum úr hlátri þegar ég las þetta, kíkiði:)

http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1307455

Við sjáumst eftir 9 daga
Kveðja
Bryndís

p.s. Inga syst og Blaka, fariði nú að bloggaGlottandi

Halløj.....

01. desember 2007 klukkan 17:15
Hejsa......

Ég er nú ekki alveg sátt með að sjá fjölda af heimsóknum og ekkert kvitt eða athugasemd eða neitt... hmm.... Hvernig væri nú að henda nokkrum línum á mann hérna?Glottandi

En annars er bara allt gott í fréttum hérna hjá mér, ég fór með alla pappírana mína AFTUR uppá skrifstofu í skólann og sagði konunum þar að ég væri nú orðin frekar pirruð á skipulagsleysi þarna og að ég væri búin að vera að vesenast meira en minna í pappírunum hjá mér síðan ég byrjaði í þessum blessaða skóla og bara vegna óreiðu hjá þeim, finndist nú allt í lagi að það yrði tekið aðeins til í pappírunum þarna, ég var samt ekkert ókurteis bara með smá pirring í röddinniGlottandi Þær báðust pent afsökunar og sögðu mér að þetta væri nú allt saman að komast í röð og reglu hjá þeim.....ekki seinna vænna.....

En annars eru bara 2 vikur þangað til að ég kem heim í heiðardalinn!! Ákkúrat á þessum tíma eftir 2 VIKUR verð ég komin á klakann og örugglega barasta á Selfossið líka.... Verður örugglega ekki búið að opna fleiri skemmtistaði á fossinum þá???Glottandi Ég verð nú bara fúslega að viðurkenna það að mig hlakkar alveg óstjórnlega til að koma heim, ekki það að mér líði illa hérna, alls ekki, en bara að hitta alla! Systurbörnin mín og systur og mömmu og pabba og allar vinkonur mínar og bara ALLA!!! VÍHÍÍÍÍÍÍÍÍÍ!!!! Get ekki beðið...

EN fyrst er það auðvitað verkefnið sem við eigum að skila á föstudaginn og svo eigum við að hafa svona power point kynningu á því viku seinna og þar í millitíðinni fer ég í verklegt próf í líkamsbeitingu!! Púff... vonandi gengur það barasta vel.....

En annars er ekkert mikið í fréttum hjá mér, bara same old, same old sko...... Gamla bandið mitt sem að ég var í í Lýðháskólanum er að fara að taka sama aftur, spurning hvort að þetta verði ekki bara eins og Sálin að koma saman aftur... haha..... nei djókBrosandi en við erum að fara að hittast núna á mánudaginn og ætlum að spila e-ð saman, þeir eru víst búnir að vera að semja e-ð sjálfir þessar elskur á meðan ég var á íslandi þannig að ég er bara alveg eiturspennt og mig hlakkar svo mikið til að fara að syngja aftur! Ótrúlegt hvað ég get orðið fötluð án þess að syngja. Fólk fær oftast mest útúr því að hreyfa sig og halda sér í formi og e-ð íþróttadæmi, en ég lifi gjörsamlega fyrir það að syngja! Elska það, algjörlega mitt líf og mín ástríðaBrosandi

En jæja, ég segi ekki meira, ætli sé ekki best að fara að búa sér til e-n mat.... Hundleiðinlegt að borða alltaf ein.....

En ENDILEGA skiljið eftir komment eða kvittið í gestabókin, mér þykir alveg rosalega gaman að sjá hverjir kíkja hérna við... Don´t be shy....

LUV
BERLINGS

Puha....

28. nóvember 2007 klukkan 15:34
Jæja, maður hefur kanski frá einhverju smávegis að segja núna.... eða hvað?Glottandi

Jújú... ég get allavega tilkynnt ykkur það að ég kem heim eftir 18 daga, ójá aðeins 18 daga!! En þangað til að ég kem heim verð ég að skrifa hópverkefni um hægðatregðu og við þurfum líka að gera power point kynningu um það og það á víst að gerast þann 14.des! þannig að það passar vel við heimferðina sem verður 15.des. Ég fer svo í próf í líkamsbeitingu eða ergonomi þann 10.des en ég ætti reyndar að vera í því 17.des en ég fæ að taka það fyrr. Þannig að það er stíf dagskrá hjá mér næstu daga og vikur. Auðvitað er smá stress í mér fyrir prófið útaf því að ég tek það nú viku fyrr en allir aðrir þannig að ég hef minni tíma til að undirbúa mig og sérstaklega þegar maður er í miðju verkefni en svona er þetta bara, maður verður bara að leggja helmingi harðar að sér við þetta allt saman.

Ég áttaði mig nú samt á því á mánudaginn þegar ég kom heim dauðþreytt eftir langan skóladag og vinnudag að stundaskráin mín og skólinn og allt sem er að gera í skólanum eru alls ekki að passa saman! Ég sat lengi yfir stundaskránni til að reyna að pota inn tímum til þess að geta lært en fann nú ekki svo marga því að alltaf eftir skóla á ég að vera að vinna frá 15-19 þannig að ég var fyrst komin heim kl 20-20:30 og eftir svona langan dag þá hef ég enga orku í að læra, ég er nú ekki SúpermanGlottandi Þannig að ég ákvað eftir smá ráðfæringar við mömmu og fleiri að ég ætti að segja upp vinnunni sem og ég gerði í gær. Hætti bara eillega á staðnum, vann til 18 og fór svo heim og ég mæti ekki aftur. Ég er eiginlega bara alveg rosalega ánægð með það að hafa gert þetta. Vinnan og skólin voru bara alls ekki að passa saman og þegar maður þarf virkilega að reyna að finna tíma til að læra, það er jú skólinn sem skiptir máli. Þannig að núna get ég bara einbeitt mér að því að læra gera verkefni og læra meira.Ullandi

En já, hvað get ég sagt meira..... smá að tefja það sko að fara að læraÓákveðinn 

Já ég er búin að skrá mig á Facebook... það er nú meira ruglið maður! dísús.... Var plötuð í að skrá mig þegar ég var í afmæli á laugardaginn og auðvitað lét ég tilleiðast, meira ruglið. En já ég var í 25. ára afmæli á laugardaginn, rosa fjör. Rikke sem var með mér í lýðháskólanum og var í sömu hljómsveit og ég. Það var alveg rosa fjör, við vorum nokkur þarna frá lýðháskólanum og það skapaðist bara lýðháskólastemning þarna! bara gamlir og góðir tímar skoBrosandi

DÍSÚS!!! VAR BÚIN AÐ SKRIFA HÉRNA TIL VIÐBÓTAR OG SVO FÓR ÞAÐ BARA!! EKKERT TIL AÐ BÆTA SKAPIÐ!!

En já það sem ég vildi sagt hafa hérna áðan var það að ég var að fá bréf inn um dyrnar frá skólanum um það að ég hefði ekki sýnt fram á það að ég væri með upprunalegu eintökin af ljósritunum af prófskírteininu mínu og fleiru sem ég sendi með umsókninni minni inn.... Sem er alveg fáránlegt vegna þess að í fyrstu vikunni í skólanum þá kom kona í tíma til okkar og við fórum með okkar pappíra og sýndum fram á að við værum með upprunalegu eintökin af öllum okkar pappírum!! Ég er illa pirruð núna, sérstaklega eftir svona ágætan dag! Hringdi í grey Skúla alveg á toppi!!! Sorry Skúli.... Mig langar mest bara að hringja núna og hella mér yfir þau því að það hefur enginn haft stjórn á mínum málum síðan ég kom í þennan blessaða skóla, frekar pirrandi!! Þannig að núna þarf ég að fara að finna þetta allt saman til aftur og fara með útí skóla! Vá ég ætla sko að hella mér yfir þessar kellur á skrifstofunni á morgum! AAARRRGGGG!!!!! ohh, þurfti bara að fá smá útrás hérna,.....

Bryndís, bráðum krónískt pirruð........

Dr. Quinn

23. nóvember 2007 klukkan 12:40
Muniði eftir þáttunum sem voru alltaf í sjónvarpinu um lækninn góða Dr. Quinn, sem að tók að sér börn systur sinnar eða e-ð álíka þegar hún dó og e-ð þannig? Muniði eftir HEITA Indjánavini hennar honum Sully?

Ég var nefninlega e-ð að flakka á milli stöðva svona í morgunsárið í dag og fann það eitt stk þátt um lækninn Dr. Quinn, góðu fallegu konuna í vestranum sem allir elskuðu og dáðu og svo var auðvitað alltaf e-ð að koma fyrir hana eða einhvern af hennar nánustu. Í þessum þætti var henni t.d. haldið föngum af stríðsindjánum og svo kom Sully hetjan hennar og bjargaði henni, AUÐVITAÐ!

Mér finnst þetta bara æðislegir þættir, svona mátulega vel/illa leiknir og ekki skemmir það fyrir að hann Sully vinur/kærasti Dr. Quinn er alveg sjóðandi heitur gaur! Alveg ótrúlega myndarlegur, svona brúnn og með mest blá augu í öllum heiminum, með svona temmilega sítt hár, samt ekki of sítt og ekki með of skorinn kropp, bara svona flottann!!

Ég fór auðvitað beint á google og googlaði gaurinn og komst að því að hann heitir Joe Lando og er miklu myndarlegri síðhærður en stutthærður! Með svona smá skeggbrodda og sonnaGlottandi

Sjáiði bara félagann
Joe Lando

Erann ekki sætur þessi elska?Glottandi

Og best að setja eins og eina af Dr.Quinn familyunni.... Bara að rifja aðeins upp gamla góða tímaBrosandi
Dr.Quinn fjölskyldan

Kveðja frá Danaveldi
Bryndís

p.s. aðeins 22 dagar þangað til að ég kem heimBrosandi

Tíminn líður alltof fljótt.....

20. nóvember 2007 klukkan 20:49
Já, það er eiginlega ekki hægt að segja annað en það að tíminn líði alltof fljótt. Á föstudaginn komu mamma, pabbi og Inga syst í heimsókn til mín og það var svo dásamlegt að sjá þau og hitta þau að ég gat varla haldið aftur tárunum, enda er þetta nú ekki búið að vera það auðveldasta sem að ég hef gert í lífinu. En ég sótti þau á flugvöllinn og brunaði með þau heim til mín, með stuttu stoppi á hótelinu þeirra, og eldaði handa þeim kjúklingarétt ala Tobba, mmm.... bara góður. Ég fékk fyrstu og einu afmælisgjafirnar mínar og fullt af knúsum og kossumKoss Það var auðvitað ekki mikið slappað af en við röltum útum allt saman og skoðuðum og ótrúlegt en satt var ekkert verslað, eða ekkert nema á mánudeginum. En ég var alltaf í góðu yfirlæti foreldranna og Ingu. Það sem mér fannst samt alveg ótrúlega skrýtið var að vera ekki að fara heim með þeim í kvöld. Mig langaði sko alveg rosa að koma heim með þeim, langaði það reyndar líka þegar Sigríður kom í síðustu viku en eftir 24 daga verð ég eldhress á klakanum, þá búin með risastórt verkefni í hjúkrun og verklegt próf í líkamsbeitingu. Ég ætti reyndar að vera að taka prófið í vikunni sem ég er heima en ég er búin að fá undanþágu hjá kennaranum og fæ að taka það áður en ég fer heim, þá er bara málið að vera duglegur að æfa sig áður en prófið verður. Kennarinn er ansi hörð og hún á mjög auðvelt með að gera mann kjaftstopp, algjör gribba en mér finnst hún æðisleg, segir bara nákvæmlega það sem að henni dettur í hug, snilldin einHlæjandi Þannig að elsku Blaka mín, engar áhyggjur, ég kem heim 15.des kl. 14:35, eða lendi þá þannig að nó wörrís, I´ll be there for you my dear, vertu bara reddý með hvítt í kælinum, bara óáfengt svo við getum báðar fengið okkurGlottandi Ég ætla allavega að panta e-n til þess að kíkja út með mér um kvöldið 15.des, hef heyrt að það verði ball á drauga með O.Fl það kvöld, hmm.... Hver ætlar að halda partý????Glottandi 

En já, við fórum svo út að borða á Sunnudaginn á Reef & Beef sem er Ástralskur staður í Köben og þar var heldur framandi matseðill í boði, meðal annars krókódíll, kengúra og emu!! Ég gerðist djörf og fékk mér Krókódíl í forrétt og Kengúru í aðalrétt, alveg rosalega gott! Smakkaði reyndar líka á Emu hjá Ingu syst og hann smakkaðist líka alveg rosalega vel!! Alltaf gaman að smakka e-ð nýtt.....

Við fórum líka í JólaTívolí með Sólrúnu og Óskari og það var alveg geggjað flott allt saman, ég ætla sko aftur og þá þegar það er dimmt svo að ég geti séð flottu skreytingarnar betur. En þetta var rosa flott og gaman. Inga og Sólrún misstu sig smá í tækjunum, fóru 2svar í rússíbanann og 2svar í falltækið sem er alveg rosaleg, það er myndband á myndasíðunni minni af því með stelpunum í, væri mest til í að eiga myndirnar sem voru teknar af þeim í rússíbananum, frekar fyndnar skoBrosandi En ég hélt mig sko á jörðinni með mömmu og pabba og Óskari, enda finnst mér laaaang best að vera bara með báðar fætur á jörðu niðri, nema náttlega þegar ég hoppa á öðrum fæti... heheGlottandi

En annars var þetta bara rosalega ljúfur tími með elsku mömmu, pabba og Ingu. Hlakka til að hitta Hrönn og Steinar þegar þau koma núna í desemberBrosandi Það er bara alveg ótrúlegt hvað þetta líður hratt, ég verð komin heim og út aftur áður en ég veit af.

En hvernig er það, er e-r orðrómur kominn um hverjir spila á 2. í jólum balli? Verður kanski ekkert 2. í jólum ball? Er Selfoss algjörlega farið á hausinn, svona skemmtanalega séð?

En jæja, nóg um það. Komnar myndir á myndasíðuna hér til hliðar, hægra megin, en annars er það líka bara www.picasaweb.google.com/bryndise85

KVEÐJA















ég með köben í baksýn uppí Rundtårnen:)










BRYNDÍS, MENNINGARFULLTRÚI KAUPMANNAHAFNAR HÉÐAN Í FRÁGlottandi

Sigríður komin og farin...

13. nóvember 2007 klukkan 20:36
bslfJæjaaaa....... fyrsta nafnskiltið sem hjúkrunarfræðinemi komið í höfn ásamt nælu með logoi skólansBrosandi ekki leiðinlegt þaðBrosandi Ekki kanski jafn fallegt og á Lansanum samtGlottandi þar er mynd og alles sko....

EN hvað um það... Sigríður kom í heimsókn til mín á laugardaginn og hún var að fara heim núna bara áðán, átti að fljúga núna kl hálf 9 í kvöld. Það var alveg yndislegt að hafa hana hérna hjá sér, þó svo að það hefði verið ennþá betra að hafa hana lengur, en svona er þetta.


En já, stelpan kom á laugardaginn og þegar við vorum komnar heim lá leiðin beinustu leið í Fiskitorvet þar sem að hún gat aðeins fengið útrás fyrir verslunarþörf okkar kvenna, ég hélt mig á mottunni í þetta skiptið, enda hefur maður ekki mikið á milli handa þessa dagana en svona er það nú bara. En við komum heim svona um 6 leytið og þá lagði Sigríður sig og ég gerði reddý fyrir örlítið afmælisteiti, bjó til kjúklingasalat handa okkur skvísunum og svo komu nokkrar vinkonur hennar frá Holte og Doddi og úr þessu varð líka þetta fínasta teitiBrosandi Planið var að við myndum skreppa niðrí bæ, en það var bara svo rosalega gaman heima að fyrr en varði var klukkan orðin 4 og þá kom Frederikke heim og vildi ólm fara að sofa þannig að við ákváðum að skreppa niðrá Österbrogade sem er bara rétt hjá mér, en þar var ekkert að finna nema snobbklúbb og svo sóðaklúbb, komumst ekki inná snobbklúbbinn nema ég, Arna og Sveina og það var bara útaf því að við vorum í stuttum pilsum og svörtum jökkum, þannig að við yfirgáfum leiðinlega dyravörðinn og leituðum lengra og fundum, reyndar bara hinu megin við götuna, einhvern lítinn sjabbí stað en þá var klukkan orðin svo mikið að við ákváðum að fara bara heim að sofa.
sd
(Við Sigríður byrjuðum kvöldið með mjööög rauðum varalitum en ég ákvað að þrífa minn af vegna þess að mér leið eins og gleðikonu með þetta.)

Sunnudagurinn var svo tekinn í chill pill, svefn, pizzu og óhollustu af bestu gerð. Held barasta næstum því að við höfum sofið meira en verið vakandi þennan tíma sem Sigríður var í heimsóknHlæjandi En það var líka voða næs og afslappandi bara, enda hún Sigríður mín ekki æst manneskja, allavega ekki miðað við mig, frekjudósinaGlottandi

En svo svona um sex leytið ákváðum við nú að fara að gera e-ð í okkar málum með þetta afslappelsi, reyndar var alltaf planið að kíkja í Kristjaníu á sunnudeginum en vegna þynnku og þreytu strokaðist það fljótlega útaf dagskránni. En um kvöldið langaði okkur aðeins að toppa óhollustuna okkar og skruppum niður í búð og keyptum ís og kökudeig til að búa til afmælisköku. Úr þessu varð líka þessa glæsilegasta kaka með marskremi, bara svona til að toppa þetta, bræddum Mars og notuðum sem krem.... nammmmmmm.... mæli með því, ætla sko alltaf að búa til svona köku fyrir börnin mín, pakkakaka með marskremiUllandi hahaha..... bara góð í að baka sko..... En kakan kláraðist í dag en ég á ennþá til góða ostana og ritzkexið sem Sigríður kom með færandi hendi!!! Vá ég er alltof mikill sælkeri maður....
da

En þetta er þessi dýýýýýýýýýýrindis kaka... namminamm....

En svo á mánudaginn átti ég afmæli, varð 22ja ára stelpan... já maður eldist....Óákveðinn
En auðvitað er ég ennþá kornung sko....

En dagurinn var nú bara venjulegur skóladagur, var reyndar að byrja í nýjum Modul í skólanum og hann byrjar sko af fullum krafti getur maður sagt, strax skellt á verkefni, það hlaut líka að fara e-ð að gerast í þessum skóla, þetta er búið að vera einum of rólegt til þess að vera satt sko.... En þessu modul líkur með risastóru prófi í An/fys sem verður þann 31.janúar og ég er að deyja úr stressi nú þegar.... púha.... En svo þegar skólinn var búinn skellti ég mér heim og við fórum niðrá Strik þar sem var sko verslað, ég ákvað að leyfa mér smávegis, keypti mér smá afmælisgjöf svona í tilefni dagsins, má það ekki alveg?Saklaus En Sigríður er búin að versla af sér rassgatið og ég öfunda hana sko af því, bara flott föt sem hún fjárfesti í....

En annars er bara allt fínt hérna í danaveldinu, styttist óðum í heimkomu mína sem verður þann 15.des!! Mig hlakkar ekkert smávegis til, sakna Íslands doldið sko, langaði smá að hoppa bara með Sigríði heim.  En svo eru mamma, pabbi og Inga syst að koma á föstudaginn og ég get varla beðið eftir þeim!!! Vá hvað það verður ljúft að knúsa þau.....

En jæja, segi ekki meira í bili.... komnar myndir frá heimsókn Sigríðar og svo er komið nýtt albúm líka með ýmsum myndum héðan úr danaveldinu, t.d. þegar Tinna og co komu í party og skroppið var í bæinn...

En knús á línuna og takk æðislega fyrir allar afmæliskveðjurnar....Koss

Bryndís

                                  berlings




VISSIR ÞÚ AÐ.......

07. nóvember 2007 klukkan 20:25
  • Ég verð 22ja ára á mánudaginn?
  • Beinagrindin sem að við notum í kennslu í skólanum er ekta, s.s. fyrrverandi manneskja?
  • Þessi fyrrverandi manneskja, beinagrindin, var karlmaður?
  • Mig langar alveg sjúklega mikið að vera í tónlistarskóla?
  • Það sem að ég sakna VIRKILEGA mikið að heiman eru systurbörnin mín?
  • Ég er byrjuð að vinna í bókabúð?
  • Þegar ég útskrifast úr hjúkkuskólanum þá verð ég orðinn Hjúkrunarfræðingur og get unnið út um allt, líka á Íslandi?
  • Árið 2010 verð ég vonandi orðin Hjúkrunarfræðingur?
  • Skemmtilegasta fagið í skólanum er Líffæra- og Lífeðlisfræði?
  • Ég byrjaði að syngja áður en ég byrjaði að tala?
  • Ég hef aldrei verið í skóla (nema grunnskóla til 14 ára aldurs eða e-ð) nema að vinna með?
  • Fantað hérna í Dk er miklu betra heima, en kókið er miklu betra heima en í Dk?
  • Ég er orðin háð Ísfólksbókunum hennar Ingu syst?
  • Ég er ein óheppnasta manneskja í heimi hvað varðar tölvur? 3 tölvur á 3 árum...
  • Mig langar alveg ógeðslega mikið að eiga framtíð í músík samhliða því að vera hjúkrunarfræðingur?
  • Ég er farin að nota gleraugun mín daglega allan daginn?
  • Ég held að það sé e-ð til í því sem familyan sagði við mig þegar ég var lítil að maður hætti að stækka ef maður myndi syngja við matarborðið?;)
  • Ég er að horfa á fæðingu í sjónvarpinu, ákkúrat núna í þessum skrifuðu orðum?:)
  • Ég elska læknaþætti og allt sem tengist heilsugeiranum?

Hehe... er ekki gaman að vita svona staðreyndir um mig?;) Ég var reyndar búin að hugsa miklu meira í gær, þegar ég gat ekki sofnað, en auðvitað var ég búin að gleyma því öllu saman þegar ég skrifaði loks bloggið...

En annars er allt bara við sama heygarðshornið hér á bæ, ég byrjuð í vinnunni í Arnold Busch, fer eftir skóla og er til svona ca 18-19. Mjög fínt og rosa fínt starfsfólk, líka fínt að hafa Söru vinkonu þarna við hliðina á sér.

en jæja... segi ekki meira núna....

J-DAG

02. nóvember 2007 klukkan 14:20
JDAGJá, ef að það er e-ð sem að danir finna uppá að gera þá er það að halda uppá það að jólabruggið sé komið í búðir. Svokallaður J-dagur er í dag, sem þýðir það að jólabruggið var að koma í búðirnar og á barina í dag, það gerist víst alltaf 2.nóv. Og það er bara þvílíkur spenningur í fólki útaf þessu, ég var á DRH hittingi í gær á einhverjum ógeðslegasta bar sem ég hef komið á í langan tíma og þar var kall sem ætlaði bara að bíða eftir jólabjórnum til kl. 09 um morguninn. Já svona er jólabjórinn merkilegur hérna.

Þeir fagna líka P-deginum, sem er semsagt dagurin sem páskabjórinn kemur í búðir og svo er einhver einn dagur í viðbót sem að ég man ekki hvað heitir né fyrir hverju hann stendur.

En allavega er bara allt gott í fréttum hjá mér, núna er Modul 1 að klárast í skólanum bara ein vika eftir og þá held ég áfram í bóklegu meðan aðrir fara í verklegt. Ég verð sem betur fer áfram í bekk með nokkrum úr bekknum mínum, þetta nefninlega stokkast upp þegar fólk fer út í verknám. Þannig að ég byrja í Modul 4 þann 12.nóv!! og hver á afmæli 12.nóv???? hmmm.....

Það versta við þetta allt saman, að þegar sigríður kemur og mamma, pabbi og inga koma þá er ég alla dagana sem að þau verða, í fullum skólaÓákveðinn En það verður bara að hafa það......

En annars hef ég nú ekki mikið að segja, er svo til nývöknuð. Kom ekki heim fyrr en hálf 5 í morgun og samt sem áður held ég barasta að ég hafi aldrei verið jafn vinsæl af vinum mínum hérna kl. 10 í morgum, það gjörsamlega streymdu inn smsin.

En svo stefnir allt í smá djammerí í kvöld, ætla að skella mér til Dragør að hitta strákana mína "bræður" mína!!  Og svo ætlum við að skreppa í bæinn, planið var nú að fara að hitta Tinnu en ég hef bara ekkert heyrt í henni þannig að ég veit ekki hvernig það fer allt saman.

En anyways.... nennekki meir...
bæmms
Bryndís

Heimilisfangið mitt og símanúmer í Danmörku

Steen Billes Gade 7, 4.tv
2100 København Ø
Denmark

Símanúmerið mitt er svo
+45 28 77 43 35

Endilega látið heyra í ykkur elskurnar:)
Lovja Berlings:)

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...