Gleðileg jól!! :-)
28. desember 2008 klukkan 14:44
Hæ elskurnar og gleðileg jól!! Núna er farið að styttast í annan endann á dvöl minni hérna á Íslandinu góða. Fer aftur út 5.jan og þá tekur bara klinik við og bara 3 annir eftir af skólanum... vá, þetta líður alltof hratt maður!!!
Fríið er bara búið að vera mjög ljúft í faðmi fjölskyldu og vina, búin að taka doldið vel áðí í djamminu og er núna hálf raddlaus með brjálað kvef!! Ligg bara uppi í rúmi að horfa á Along came Polly í rólegheitunum og nýt þess að vera aðeins ein heima :-)
En svona í sannleika sagt þá nenni ég hreinlega ekki að blogga ákkúrat núna!!! Takk samt fyrir jólakortin, þið sem senduð mér. Þið fáið engin kort frá mér í ár, en þið fáið væntanlega jólakort næsta ár, hafði hreinlega ekki tíma, getu né nennu í að skrifa þau í ár.
En vildi bara skrifa nokkrar línur hérna inn... aðeins að láta heyra í mér...
Bæjóspæjó

Ísland :-)
14. desember 2008 klukkan 20:29
Ahhhhh...... komin heim á Selfoss til múttu og pápa!! :-) það er alltaf jafn gott að koma heim og knúsa elsku fjölskylduna mína.....
Pabbi og mamma komu að sækja mig á flugvöllinn og svo var brunað á Selfossið þar sem ég gerði mig reddý og svo kom Blaka að sækja mig og við brunuðum í Reykjavíkina á tónleika með Emiliönu Torrini. Það var rosa gaman og hún er sko bara algjör dúlla og tónlistin hennar er bara frábær!! Þarf klárlega að kaupa mér diskinn með henni við allra fyrsta tækifæri..... En svo þegar tónleikarnir voru búnir þá brunaði ég beint í afmæli til Ingu Birnu upp í sumarbústað og þar var feiknar fjör... þau voru búin með bolluna en kanski var það bara gott fyrir mig ;-)
En já, það var mikið sungið og spilað og fíflast langt frameftir nóttu, leit seinast á klukkuna kl hálf 6 í morgum.... og það má segja að ég sé frekar þreytt núna, líka þar sem að ég er búin að vera í heimsóknum í dag að heimsækja elsku systur mínar og þeirra börn og menn!! Fékk ekkert smávegis yndislegar móttökur frá þeim :-) varð bara klökk við að fá svona góð faðmlög frá þessum elskum!! :-)
En svo er það bara hygge og svoleiðis framundan með smá lestri fléttuðum við... Ætla að dúllast með henni múttu minni á morgum og svo erða Reykjavíkurferð á Þriðjudaginn með henni Blöku minni... ætla að leggja lokahönd á jólagjafainnkaup og reyna að finna mér jólakjól þar sem að ég fann engann í danaveldinu :-)
Þannig að ég held að ég segi ekki meira í bili..... Við sjáumst;-)
Knús Bryndís

Er bara komin til Íslands eftir SMÁstund.... augnablik...;-)
04. desember 2008 klukkan 15:14
Jújú... aðeins 9 dagar í að ég mæti eiturhress Islandið og hrelli kreppuna í burtu af litla sæta landinu mínu, verð mætt um hálf 4 þannig að þá getið þið sumarbústaðarfólk farið að hita upp fyrir partyljónið!!! ;-) Sko hugurinn minn er gjörsamlega mættur heim á Selfoss að knúsa mömmu og pabba, er meira að segja búin að frátaka að fá að setja kremið á mömmukökurnar sem mamma var að baka á þriðjudaginn!!! Sjáum til hvað fer mikið á kökurnar og hvað fer mikið oní mallakútinn minn!! híhíhí.....
En ég er semsagt í verknámi og get sagt að ég sé ekkert rooosalega mikið að fíla þetta... Hefði frekar viljað komast inn á lokaða deild eða e-ð álika þar sem að fólk er virkilega veikt, veit að það er doldið ljótt að segja þetta en svona er ég skrýtin. Maður er bara með í einhverjum samtölum þarna og fer í einstaka heimsókn til fólks og flest þetta fólk er með Skizofreniu þannig að það er voða lítill fjölbreytileiki í þessu, þó svo auðvitað að enginn sjúklingur sé eins. En núna er bara málið að klára þetta og þá er þessi áfanginn búinn.
Ég er samt búin að komast að því að ég er alveg afspyrnu góður nágranni... Greyið Lene (besta vinkona Sigríðar ;-) Var að koma heim úr Nettó núna þegar ég var að koma heim, hún hafði verið að versla sér aðeins af bjór og vín og bara allt sem áfengt má kallast og svo e-ð meira, en hún hafði semsagt stolið 2 svona handkörfum úr Nettó og þetta voru ekkert lítið þungar körfur og konan býr sko á 5. hæð. Hún var að brasast upp tröppurnar þegar ég kem heim og auðvitað býðst ég til þess að hjálpa henni greyinu. Hún hvíldi sig á hverjum einasta stigapalli og ég get svo svarið það ég hélt á tímabili að hún myndi ekki meika það upp á 5. hæð. En ég tók semsagt aðra körfuna, þá sem var þyngri og bar upp fyrir hana. Hún var voða þakklát greyið, enda hefur hún örugglega verið að farast úr vökva/áfengisskorti við þessi átök hjá henni.. en við getum allavega sagt að ilmvatnið hennar hafi verið áfengi... maður varð nú bara næstum fullur við að standa við hliðina á henni greyinu.
En já... veit ekki hversu mikið meira ég hef að segja í bili... það verður bara vinna í Tivoli alla helgina og mánudag og svo föstudaginn eftir viku og svo er ég mætt á klakann!! Jájájá.... mætt á tónleika með Emiliönu og svo í afmæli hjá henni Ingu Birnu sem á BTW afmæli í dag. Til hamingju með afmælið Inga mín!! Orðin hálf 50 þessi elska ;-)
Segi ekki meira í bili....
Sjáumst eftir 9 daga!!
Berlings
P.S. Tjékkið á þessu myndbandi, ef að þið klárið að horfa á það sjáið þið mig þarna eiturhressa ;-) er alveg að ná frægðarljómanum í Danaveldinu http://www.bt.dk/clip/44/496

Styttist í frónið....
27. nóvember 2008 klukkan 20:11
Já... það styttist heldur betur í að ég mæti eldspræk á klakann!! Aðeins rúmar 2 vikur þangað til að ég mæti og þá ætla ég sko að knúsa alla í kaf!! Er búin að vera að vinna dálítið inni í Tívolí og þar er svo mikið af fjölskyldufólki þannig að maður getur ekki annað en að sakna fólksins síns dálítið þegar maður sér allar mömmurnar og pabbana og systur og frænkur og frændur!! Fékk alveg svona mig langar að knúsa pabba minn tilfinningu. En ég fæ að knúsa ykkur öll eftir rúmar 2 vikur!!
Ég ætla nú samt að skella mér á tónleika sama dag og ég kem heim, ég og Blaka erum búnar að skella okkur á miða með Emiliönu Torrini! Tækifæri sem ekki var hægt að sleppa og svo er líka búið að bjóða mér í afmæli uppí Úthlíð sama kvöld þannig að eftir tónleikana bruna ég e-n vegin beint upp í bústað í feiknar fjör!!! Enda ekki við öðru að búast af þessum ungu píum:-)
En ég er semsagt byrjuð í verknámi núna. Er búin að vera í introi núna mán, þri, mið og svo var fyrsti "alvöru" dagurinn minn í dag. Ég var nú ekkert e-ð þvílíkt upprifin yfir því hvar ég var sett, en svo í dag eftir einn svona alvöru dag lítur þetta allt saman mjög vel út. Fékk að vera með í viðtali við sjúkling og fór í stafagöngu með 2 sjúklingum og sonna! Mjög gaman sko... kom mér allavega á óvart á góðan hátt...
En þessi deild, ef svo má kalla, heitir DP Gladsaxe og það þýðir Dystrikt Psykiatrien i Gladsaxe. Þetta er semsagt einskonar dagdeild, þar sem að útskrifaðir sjúklingar koma inn í viðtöl og svo er líka farið út í heimsóknir til fólks sem þess þarf og það fæ ég líka að upplifa, þannig að þetta verður örugglega mjög fljótt að líða.
En já... þetta er svona það sem er helst í fréttum þessa stundina. Allt annað er bara við sama heygarðshornið hérna í baunalandi. Kom smá snjór um daginn sem var auðvitað ekki neitt neitt, og svo er bara eiginlega búið að vera fjandi kalt. Nema í dag og í gær, þá er bara búið að vera svona haust kalt, ekkert e-ð stórvægilegt neitt....
Þannig að ég segi þetta gott í bili...
Until later, Bryndís

ROOOSA "GÓÐ" í dönsku......
21. nóvember 2008 klukkan 12:35
Já... maður lærir ýmislegt með tímanum get ég sagt ykkur... Núna ætla ég að segja ykkur litla sögu af lítilli stelpu sem býr í Kaupmannahöfn.....
Það var þannig að það var ung stúlka frá Selfossi sem ákvað það að flytja til stórborgarinnar Kaupmannhafnar til að stunda nám við Hjúkrunarfræði við Sygeplejeskolen i Herlev. Stúlkan var alveg talandi á dönsku en vantaði þó alltaf einhver orð inn í. Þegar stúlkan var búin að búa í Kóngsins Köbenhavn í tæp 2 ár þá var hún bara talin nokkuð góð í dönsku og var hrósað fyrir hversu vel hún talaði tungumálið miðað við stuttan dvalartíma.
Svo varð það einn daginn að hún skrapp í Fisketorvet með vinkonu sinni og mömmu hennar. Þær fóru allar að tala saman og svo segir mamma vinkonunnar við stúlkuna: ,,Mikið roosalega blótar þú stúlka góð!" Stúlkan varð hálf kjánaleg og segir: ,,NÚ? Geri ég það??" Þá segir vinkonan: ,,Já, þú blótar rosa mikið, það er ekkert sérlega "pent" að hlusta á þig tala." Stúlkan hálf skammaðist sín og skildi eiginlega ekki um hvað þær voru að tala. Hún spyr þá hvað það væri sem hún segði sem væri svona ljótt að segja. Þá kemur það í ljós að stúlkan notaði mikið orðið SGU! Hún hélt í sakleysi sínu að orðið sgu þýddi á íslensku sko/hénna, eins og fólk notar oft inn í setningum á Íslandi. Hún biður þær um að útskýra fyrir sér hvað orðið þýðir en fékk enga góða útskýringu. Þegar hún kemur heim um kvöldið fer hún aðeins að pæla í þessu og ákveður nú að kíkja í orðabókina sína þegar hún er að fara að sofa. Hún flettir upp orðinu SGU og kemst þá að því að orðið SGU þýðir fjandans eða andskotinn hafi það!!!!!
Stúlkan gat nú ekki annað en hlegið að sjálfri sér og sofnaði með bros á vör. Nú var hennar aðal áskorun að hætta að nota orðið SGU svona mikið afþví að hún notar það eiginlega í annarri hverri setningu.
Framhaldið af sögunni kemur þegar hún er hætt að nota orðið Sgu eins mikið og hún gerir í dag.
Boðskapur sögunnar....
Athugið alltaf hvað orðið þýðir áður en þið farið að nota það í annarri hverri setningu og þið eruð ekki viss um hvað það þýðir!!!
Jahá... þetta var skemmtileg saga er það ekki?? Nú verður spennandi að sjá hvernig stúlkunni mun ganga að minnka notkunina af orðinu. Ég get vel skilið afhverju fólk sagði að hún blótaði mikið fyrst að hún notaði þetta orð svona mikið, hún hefur örugglega hljómað eins og versti trukkabílstjóri....
En munið nú boðskap sögunnar....
Kveðja
Bryndís

Hvað skal segja, hvað skal segja??
18. nóvember 2008 klukkan 15:02
Jahá... þið segið svona mikið öllsömul :-)
Hef svosum sjálf ekki mikið að segja, var hjá lækninum í dag vegna þess hversu illt mér er búið að vera í öxlinni síðustu ca 2 mánuðina eða svo. Hann gat nú svosum ekki gert mikið fyrir mig en gaf mér vottorð að ég ætti að fara til sjúkraþjálfara því að hann hélt að þetta hefði gerst við ofreynslu... veit nú samt ekki hvað það hefði átt að vera, en kanski gerði ég e-ð vitlaust þegar við vorum að flytja og færa allt þetta drasl upp og niður af loftinu og IKEA dótið og það allt saman, veitiggi, kanski... En já, ég á semsagt að fara til sjúkraþjálfara....
En ég er semsagt líka byrjuð að vinna í Tivoli í svona litlu rauðu húsi að selja vörur frá Grænlandi, það er alveg ágætt, doldið kalt en huggulegt með öll jólaljósin og krúttlegt fólk. Hitti einmitt Íslenska konu þar í gær og hún fór bara þvílíkt að spjalla :-) En sjæsa var kalt þarna í gær... brrr... veit ekki hvað ég var mikið klædd en ég líktist allavega súmóglímukappa í öllum þessum fötum!!
En ég hélt líka smá afmælisparty hérna heima á Föstudaginn, bara svona lítið og krútlegt. Það var voða gaman, endaði reyndar með smá rifrildi hjá nokkrum manneskju og ég var ekki ein þeirra en það er samt alltaf leiðinlegt þegar fólk fer að rífast. En það voru samt eiginlega allir farnir þannig að fólkið sem var að rífast fór bara líka!
En annars styttist bara óðum í heimkomu... 13.des, bara minna en mánuður :-) get ekki sagt annað en að mér sé farið að hlakka doldið til!! Unnur Eyjólfs er svo að koma í smá heimsókn hérna heim á morgum, hún er í heimsókn hjá Óla og Röggu þannig að hún ætlar að kíkja á mig og ég ætla að baka handa henni pizzu og gefa henni rauðvín með þar sem að ég fékk svo mikið rauðvín í afmælisgjöf :-) huggulegt....
En já.. held ég segi ekki meira í bili

1 ný hrukka komin í ljós og 1/2 grátt hár ;-)
13. nóvember 2008 klukkan 21:36
Jáááá.... ár nr 23 gengið í garð hjá mér... vonandi verður það bara jafn viðburðarríkt og ár nr 22....:-)
Gærdagurinn var vægast sagt alveg yndislegur! Bara rosalega langt síðan ég hef átt svona frábæran afmælisdag, ekki það að hinir hafi verið e-ð slæmir, alls ekki en þessi var e-n vegin svo allt öðruvísi en allir hinir sem ég hef átt! :-) Fyrir það fyrsta var ég vakin með "fána að húni" (eða Finu með danska fánann að ryðjast inn í herbergið mitt og kalla til hamingju með afmælið!!!:-) og þá var þessi elska búin að fara í bakaríið og kaupa rúnstykki og það beið mín ásamt afmælispakka! Hún fór svo í skólann og ég kúrði mér aðeins lengur, þar sem að ég var nú í fríi í skólanum! Svo fékk ég 2 afmælispakka frá Íslandi frá systrum mínum og fjölskyldum, bara æðislegt! :-) Svo var skellt sér í afmælisbaðið og gert sig örlítið fínni en aðra daga og skundað út og niður í bæ þar sem ég "sótti" Finu í skólann og við fórum í H&M, hún að versla sér cardigan og ég bara að dúlla mér. Svo röltum við niður strikið og i Tivoli þar sem við vorum að fara á starfsmannafund hjá Grønland i Tivoli, þar sem ég ætla að vera að vinna þangað til ég fer á klakann um jólin. Þetta kvöld var opið fyrir boðna gesti og svokallað Lyseshow, það var semsagt verið að kveikja á jólaljósunum og fyrir gestina var frítt í öll tæki! SNILLD!!! Meira að segja kjúklingurinn ég fór í rússíbana, reyndar ekki stærsta en það er sama, rússíbani erða, ég og Fina vorum alveg að skíta í okkur af hræðslu í fyrstu ferðinni, en hann fór annars 5 hringi með okkur!! Svo vorum við orðnar nokkuð kúl eftir 4 ferðir sko ;-) Svo fórum við auðvitað í víkingaskipin og klessubílana og þarna "siglinguna", getum sagt að við höfum byrjað rólega og svo orðið aðeins hugrakkari :-) Nanna vinkona mín kom líka og var með okkur og þetta var alveg æðislega gaman og huggulegt! Svo hjóluðum við bara heim og það var farið tiltölulega snemma að sofa eftir alveg æðislegan dag!!
Gaman samt að segja frá því hvað það er rosalegur munur á modulum núna!! Dísús, seinasti modull var alveg glataður, hræðilega leiðinlegur og óáhugasamur og svo núna hlakkar mig í alvörunni til að fara í skólann!! Bara gaman þegar maður er að læra e-ð virkilega áhugavert!! Svo eftir næstu viku byrja ég í verknámi og verð á stað sem heitir DP Gladsaxe, sem er með öðrum orðum Distrikt Psykiatri, e-s konar dagdeild eða e-ð þannig... hefi helst viljað komast inn á sjúkrahús og upplifa e-ð spennandi í geðinu en vonandi verður þetta bara jafn spennandi...
En já, annars held ég bara að ég segi ekki meira í bili...
Takk fyrir allar kveðjurnar bæði á facebook, sms og hérna inni!! Þið eruð æði!!
Kveðja
Bryndís sem er orðin árinu eldri og þar með vitrari ;-)

Vonbrigði.....
10. nóvember 2008 klukkan 20:00
Já, verð því miður að hryggja ykkur með miður leiðinlegum fréttum... Löggupartyið var HUNDLEIÐINLEGT!!! Því miiiiður.... Veit ekkert hvort ég á að vera að fara í fleiri party hjá skólanum mínum, þar sem að flest party sem þau halda eru bara frekar leiðinleg. Þannig að ég held bara að ég haldi mig við party hjá skólanum hennar Finu... hehe....
En dagurinn var þó ekki alslæmur, alls ekki.. Við fórum semsagt á fredagsbar hjá skólanum hennar Finu, vorum mættar þangað kl 14 og jólabruggið var mætt í hennar skóla fyrir áætlaðan tíma niðrí bæ ;) Ekki slæmt það, þannig að maður fékk forskot á sæluna. Þarna mættu ANSI hressir gaurar get ég sagt ykkur... haha... ég lenti auðvitað í því að sitja við hliðina á þeim sem var svosum ekki alslæmt þar sem að þeir voru bara nokkuð fyndnir piltarnir :-) En þar sem að Fredagsbarinn lokaði kl 17 þá var ferðinni heitið á LA Bar þar sem haldið var áfram, við yfirgáfum hinsvegar svæðið við hálf 7 leytið þar sem að við áttum von á gestum í smá fyrirparty sem átti að byrja kl 8....
Stelpurnar mættu svo hingað heim og við fórum á Park í Löggupartyið sem reyndist vera bara mjög stórt svekkelsi en við náðum samt að tóra til kl 4 um nóttina þannig að við afrekuðum að djamma í 14 tíma!! Nokkuð gott fyrir manneskju sem er komin úr djammæfingu!! Ég var auðvitað ekki komin með nóg og langaði líka að djamma á laugardaginn þar sem að það var konukvöld á íslendingabarnum niðri í bæ, en þar sem að ég fékk engan með mér þá endaði ég bara heima í náttfötunum enn eitt laugardagkvöldið. En ég bæti nú úr því um næstu helgi, ætla að halda smá afmælishygge hérna heima á Föstudagskvöldið með svona mínum nánustu vinum hérna úti :-) verður bara huggulegt....
Nanna vinkona ætlar svo að koma á miðvikudagin með afmælisköku handa mér og ég ætla að baka pizzu svona ala Karen syss/mamma/Hrönn/Inga :-) Nammi namm.. maður verður nú að gera vel við sig á afmælisdaginn sinn ekki satt??
Fyndið samt, þegar ég kom heim úr skólanum í dag þá var ég alveg ótrúlega pirruð... Samt eiginlega útaf engu... Svo lúrði ég aðeins og fór í ræktina og er bara komin í rosa gott skap núna :-) Greinilegt að það hjálpar að slá útí loftið og sparka þegar maður er í vondu skapi!!! :-)
En já... segi ekki meira í bili....
Næst þegar ég skrifa verð ég orðin árinu eldir!!! Doj doj doj.....

Gavin my loooooveee....;)
06. nóvember 2008 klukkan 13:18
Já.... get sko með sanni sagt að gærdagurinn var góóóóóður!!! Loksins var komið að því... Gavin DeGraw í KB Hallen, miðar sem voru keyptir í júní, stuttu eftir tónleikana hans í Vega 5.júní.... Ooooo.... hann er sko alltaf jafn sætur.... Og alltaf jafn góður!! Við komum allavega heim með stórt bros á vör!!! Við gerðum auðvitað eins og síðast, keyptum geisladisk og fengum að hitta hann... hann kallaði mig BABE, ég fékk knús og þar sem að ég átti næstum því afmæli þá fékk ég að taka mynd af okkur saman... GLEÐI GLEÐI GLEÐI!!! Ég var reyndar með lokuð augu á myndinni en skítt með það!! Hann gaf mér eiginhandaráritun og teiknaði afmæliskerti og töluna 23 undir :D :D
Ohhhh.... já, lífið er gott get ég sagt ykkur.... Svo er bara næst á dagskrá að framkalla myndina, búa til risastórt plaggat til að hengja upp inni í stofu!! ;)
Svo er löggupartyið á morgum, ég er búin að kaupa svo marga miða fyrir fullt af stelpum að ég hef varla tölu á því!! híhíhí.... fór meira að segja spes ferð til að kaupa miða uppí skóla áðan fyrir Avi... hehehe.....
En já, segi svosum ekki meira í bili... kem líklegast með fréttir eftir partyið...

Kveðjur
Gavin og Bryndís DeGraw.....

That´s life
04. nóvember 2008 klukkan 13:35
Þetta gæti ekki átt betur við.....
That's life, that's what all the people say.
You're riding high in April,
Shot down in May
But I know I'm gonna change that tune,
When I'm back on top, back on top in June.
I said that's life, and as funny as it may seem
Some people get their kicks,
Stompin' on a dream
But I don't let it, let it get me down,
'Cause this fine ol' world it keeps spinning around
I've been a puppet, a pauper, a pirate,
A poet, a pawn and a king.
I've been up and down and over and out
And I know one thing:
Each time I find myself, flat on my face,
I pick myself up and get back in the race.
That's life
I tell ya, I can't deny it,
I thought of quitting baby,
But my heart just ain't gonna buy it.
And if I didn't think it was worth one single try,
I'd jump right on a big bird and then I'd fly
I've been a puppet, a pauper, a pirate,
A poet, a pawn and a king.
I've been up and down and over and out
And I know one thing:
Each time I find myself laying flat on my face,
I just pick myself up and get back in the race
That's life
That's life and I can't deny it
Many times I thought of cutting out
But my heart won't buy it
But if there's nothing shakin' come this here july
I'm gonna roll myself up in a big ball and die
My, My
Kveðja Bryndís