16 tíma vakt....
Svo fór ég að vinna í dag og brunaði svo beint á æfingu á self eftir vinnu... Ég get nú ekki sagt annað en það að það var frekar ljúft að koma heim í "sveitina" það er bara svo miklu rólegra umhverfið hérna en í rvk....
En vá, ég segi því upp að fara á stofu í strípur og klippingu.... Var að panta mér um daginn á Krítk og það er bara farið að kosta næstum 10 þús kall að fara í klipp og stríp.... Þetta er rugl, og þetta er ennþá dýrara á Ozone, hverni ætli þetta sé eiginlega á þessum "flottustu" stofum í rvk?!?!?!?!?! Það er ekki heil brú í þessu....
Segi upp
Berlings
Myndir
Jeg savner DRH!!

Já ég get ekki sagt annað en að ég sakni þessara krakka, þau eru sko öll algjör yndi
Svo voru auðvitað tónleikar og maður missti sig aðeins í það að syngja
Þarna er ég með skólahljósveitinni minni í tónleikaferðalagi um Sjáland!! Það var alveg glimrandi stuð og þetta var í Krogerup hojskole og þar hitti ég alveg hellings af íslendingum

Ég keypti mér líka skó, og þetta er sko mit yndligs par!!!! Af svona strigaskóm allavega.... keypti auðvitað líka fullt af flottum spariskóm
Sunburst að spila í Templet! Þetta átti sko að vera alveg geggjað flottur staður svo var þetta bara rugl ljótur og illa lyktandi staður!! En fullt af fólki að horfa og það var mjög gaman, þrátt fyrir vonda lykt

Sjællandsturnéen!!! Bara góður hópur! Held að allir dagarnir í ferðalaginu hafi verið skemmtilegir

Jónína MASSAKÖGGULL!!!

Þetta voru svo seinustu tónleikarnir í tónleikaferðalaginu! Þetta var sko snilld!!!
Ég veit eiginlega ekki afhverju ég er að setja þetta inn.... Langar samt svona að þið sjáið hvernig líf mitt hefur verið seinasta hálfa árið!! Semsagt geggjað gaman bara!!!
Held barasta að ég sé komin heim miklu betri og þroskaðri manneskja
En hvað um það.... Þið getið alltaf kíkt á síðu skólans og slóðin þangað er www.drh.dk og ef þið viljið sjá myndir þá klikkiði bara á klik for billedegalleri neðst á síðunni... svo getiði líka fengið fullt af upplýsingum um skólann ef að ykkur langar í svona tónlistarlýðháskóla! Mæli eindregið með þessum! Einn af bestu tónlistarlýðháskólum í dk og það er fullt af þekktu dönsku fólki sem er að kenna þarna... svo getiði líka bara talað við mig ef að þið viljið vita e-ð meira!!! Ég á sko fullt af myndum og tónlist frá skólanum!!
Later Berlings
Var að skoða þetta áðan... Er þetta ég??
Sporðdrekinn
Árstími Sporðdrekans er mitt haustið. Á þessum tíma styttist dagurinn óðfluga og skammdegismyrkrið eykst. Gróðri hnignar, lauf eru fallin af trjám, frost sest í jörð og veður versnar. Fyrir Sporðdrekann er þessi tími mótandi og setur mark sitt á sálina. Hann er því heldur dulur og lifir töluvert í eigin heimi.
Tilfinningar
Sporðdrekinn er tilfinningaríkur og frekar varkár. Að öllu jöfnu virðist hann hægur og rólegur á yfirborðinu, en tilfinningar ólga oft undir niðri. Hinn dæmigerði Sporðdreki er kjarnyrtur og hreinskilinn og lítið fyrir yfirborðsmennsku. Þegar sagt er að Sporðdrekinn sé dulur þarf að hafa eitt í huga. Hann er næmur og tekur tilfinningar og líðan annarra inná sig. Hann heldur fólki því oft frá sér í varnarskyni. Hann vill kafa djúpt ofan í það sem hann tekur fyrir og er því lítið fyrir yfirborðskenndan kunningsskap eða samræður. En þegar hann er með fólki sem hann treystir fyrir tilfinningum sínum er hann alls ekki dulur. Þá er hann oft stjórnsamur og opinskár og á til að ræða hvað sem er. Sporðdrekinn getur því verið dulur og lokaður gagnvart ókunnugum, en að öðru leyti kjarnyrtur og opinskár.
Stjórnsemi
Sporðdrekinn er eitt af stöðugu merkjunum. Það táknar að hann er fastur fyrir og ósveigjanlegur í persónulegum stíl sínum og viðhorfum. "Nei, þetta geri ég aldrei," segir hann og verður ekki haggað. Þó hann geti virst rólegur á yfirborðinu er hann ráðríkur og stjórnsamur. Hann vill ráða, að minnsta kosti yfir eigin umhverfi og lífi.
Heilindi
Sporðdrekinn er skapstór og tilfinningaríkur og tekur ákveðna afstöðu með eða á móti mönnum og málefnum. Hann vill ganga heill að hverju verki, hvort sem er um vinnu, ást eða áhugamál að ræða. Hann er lítið fyrir hálfkák og vill komast til botns í hverju máli. Sporðdrekinn er því ekki maður sem á auðvelt með að skipta sér á milli margra ætlunarverka.
Einbeiting
Alvörugefni Sporðdrekans og þörf fyrir að komast til botns tengist öðrum persónuleikaþætti, sem er einbeiting. Hann hefur þann hæfileika að geta einbeitt sér að ákveðnum málum og útilokað umhverfi sitt og annað sem er óviðkomandi. Segja má að honum hætti til að fá einstök mál á heilann, svo jaðri við þráhyggju.
Kaldhæðni
Skopskyn Sporðdrekans birtist oft í beittum og kaldhæðnislegum athugasemdum. Hann á til að "stinga" með eiturbroddinum fræga þegar sá gállinn er á honum. Hann er því erfiður andstæðingur og vont að lenda í rimmu við hann, enda á hann til að vera grimmur ef fólk reitir hann til reiði eða stendur í vegi fyrir honum. Hann berst hins vegar af sama krafti fyrir þá sem honum þykir vænt um og er að öllu jöfnu traustur og góður vinur.
Dulúð
Sporðdrekinn hefur áhuga og hæfileika á sviði rannsókna. Hann heillast oft af því sem er dularfullt og hefur gaman af að svipta hulunni af yfirborðinu og komast að kjarna málsins. Hann hefur því oft áhuga á spennumyndum og glæpasögum, en einnig á dauðanum, kynlífi og reyndar öllu því sem er á einhvern hátt hulið myrkri, spennu og dulúð.
Einvera
Til að endurnýja lífsorku sína og viðhalda henni þarf Sporðdrekinn að draga sig annað slagið í hlé. Hann þarf á reglulegri einveru að halda. Ef önnur merki viðkomandi Sporðdreka eru félagslynd getur komið að sömu notum að skipta annað slagið um umhverfi. Hann þarf að hreinsa sig af utanaðkomandi áhrifum, til að geta sinnt eigin verkefnum án afskiptasemi og til að koma stillu á 'vatnið'. Einbeitingin er sterkust og ímyndunaraflið flæðir best þegar kyrrð ríkir í umhverfinu.
Svo sá ég þetta! Varð ekki sátt! Passar þetta við mig????
Sporðdrekinn
Sporðdreki (23. október - 21. nóvember): Þú ert frekur og valdasjúkur, færð einstök mál á heilann (þráhyggja) og ert því einhæfur og hundleiðinlegur. Þú ert ímyndunarveikur og tortrygginn, móðgast útaf engu og gerir úlfalda úr mýflugu. Lífið er annað hvort frábært eða ómögulegt. Þú ert eins og biluð plata, stöðugt að spila sama lagið. Sporðdrekinn er ráðríkur og stjórnsamur, sérstaklega hvað varðar eigin líf. Þar vill hann helst ráða öllu. Fyrir vikið er hann valdasjúkur, hvað annað? Sporðdrekinn er fastur fyrir og vill komast til botns í því sem vekur áhuga hans. Hann beinir því mikilli og sterkri athygli að áhugasviðum sínum, sem leiðir í sumum tilvikum til þráhyggju og einhæfni. Eitt mál á alla athyglina. Ekki er hugsað eða talað um neitt annað og fyrir vikið á Sporðdrekinn til að verða ansi þreytandi.Og svo er það ímyndunaraflið og viðkvæmnin. Skrattinn er málaður á vegginn, allt mögulegt gæti komið fyrir. Að hluta til tel ég að tilhneigin Sporðdrekans til að búast við því neikvæða, sé sprottin af valdaþörf. Það sem hann væntir, getur ekki komið lífi hans úr skorðum. Hann er búinn að hugsa málið og ákveða hvernig hann muni bregðast við. Hann er því alltaf við stjórnvölinn. Almennt séð þá eru engin grá svæði þegar Sporðdrekinn er annars vegar. Hin sterka og dramatíska upplifun hans gerir það að verkum að innlifun hans er alltaf sterk. Lífið er því ýmist frábært eða ómögulegt. |
If you can dream it you can do it!!
Snilldar máltak!
Æjjj.... ég veit eiginlega ekki hvað ég er að baulast hérna... Sigríður var það yndisleg að bjóða mér í mat í gær í alveg ógisslega gott kjúllasalat og svo desert með ís og ávöxtum og mars
hehe... Eftir það kíkti ég til Þórlaugar og þar vorum við að skoða myndir og tala.... Vá hvað maður þarf stundum bara að sleppa fram af sér beislinu og tala við vinkonur sínar, það er æði
Fengum okkur smá hvítvín og bjór, enduðum á krúsinni og kíktum svo á pakkarann! Alltaf sama fólkið þar svosum, en það er alltaf gaman að kíkja á pakkarann.... Það var reyndar frekar mikið troðið í gær og hljómsveitin var mjög góð... Verð nú samt að viðurkenna að það er fjandi dýrt að þurfa að borga 1000 kall inn á pakkhúsið... Þeir komast bara upp með það vegna þess að það er enginn annar skemmtistaður í þessum blessaða bæ sem er BTW bara lélegast í heimi finnst mér..... Milli 5-6 þúsund manneskjur sem búa hérna og 1 skemmtistaður!! WHAT!!!
En það þýðir lítið að væla um það, ég sakna bara Inghól og langar á ball í inghól og helst með Sálinni
ÞAð var allavega alltaf gaman í Inghól![]()
En hvað um það, ég er frekar hungruð og langar í e-ð að éta....
Later
Jæja er sumarið komið??
En ég er búin að vera rosalega dugleg í dag! Vaknaði við frekar vondan draum og dreif mig bara á fætur og ákvað að fara að taka til í íbúðinni... Og það veitti sko ekki af.... Það er líka svo gaman að sjá íbúðina eftir á, þá er hún svo fín og hrein... Spurning hvað það endist lengi
Stefnir allt í að maður kíki á self um helgina, og svo er maður að fara að æfa með bossanova hljómsveitinni sem ég er að fara að syngja með þann 10.ágúst í þorlákshöfn... Er frekar spennt fyrir því og það verður voða gaman að fá að syngja aðeins... Fá smá útrás fyrir það allt saman
En annars er voða lítið að frétta af mér... Var bara að koma af kvöldvakt og er svo að fara á morgunvakt á morgum... Ég þarf samt alltaf að setjast niður og slappa af áður en ég fer að sofa eftir kvöldvaktir því maður er svona frekar uptight eftir vaktir.... Fer samt eftir því hversu erfiðar þær eru
En annars er ekkert meira að frétta af mér... Allt við sama heygarðshornið hérna
Later Bryndís
Já enn ein helgin liðin....
Já, maður getur sko alveg sagt að maður hafi tekið á því um helgina... Fjúff.... Það tekur mig örugglega 2 vikur að jafna mig eftir þetta![]()
Ég og Sigríður fórum semsagt á NASA á Sálina á föstudaginn!! Vá var gaman!!! Ég stillti mér bara á minn stað, fremst við sviðið og grúppíaðist eins og mér einni er lagið
Sigríður reyndi að fá mig með sér einhvert annað en mér var ekki haggað
híhí.... Við hittum líka fullt af celebrities, eða svona landsþekktu fólki.... Þar má meðal annars nefna Þorvald Davíð, Pál Óskar, Hilmi Snæ og gaurinn úr Hostel... Sem að ég viðurkenni alveg fúslega að ég þekki hann bara ekki baun í bala og veit ekkert hver er...
En það er sama...
Endaði svo á tánum niðri í miðbæ með blöðru á tánum...
EN helgin var bara rétt að byrja þarna, fór svo með Sigríði heim á Selfoss og fór að æfa með Stebba fyrir tónleika sem við erum að fara að spila á þann 10. ágúst í Þorlákshöfn. Svo í gærkvöldi þá ákváðum við Sigríður að fara á Bryggjuhátíð á Stokkseyri... Kíktum til Guðjóns frænda og svo í party til Heiðars. Maður hitti alveg fullt af fólki þarna
Mjöööög gaman... Ég skemmti mér allavega alveg roosalega vel enda klikkar eillega aldrei djamm á Stokkseyri með strákunum og Sigríði
En hvað um það.... Nenni ekki að skrifa meira.... later
Berlings
Dúdúdúdúdúdúdúrúdúdúrú = Hreindýr, hreindýr, hreindýr, hreindýr!!!!
En hvað um það.... Þar sem maður var útlendingur í dk þá lenti maður oft á svona spjalli, ömm... hvernig segir maður knælle á íslensku (hvordan siger mand knælle pa islandsk?) og spurningarnar dundu á manni hvernig maður segir hitt og þetta á íslensku. Ég get sko með sanni sagt að ég upplifði nákvæmlega það sama með honum Jux grænlenska vini mínum. Ég man nú ekki hvernig setningin var en það var allavega dúdúdúdúrúdú.... dæmi og þetta dúdúdúdúrúdú þýðir semsagt hreindýr. Þarna komst ég að því að maður getur talað grænlensku með eintómum dúdúum en það er ekki sama hvernig áherslan er á dúdúið!!! En hann Jux sagði semsagt heila setningu með dúdúum sem þýddu ekki nærri því það sama bara vegna þess að hann lagði mismunandi áherslur á dúdúið!! Svo ég nefni dæmi þá þekkið þið væntanlega lagið Too young to die sem er semsagt lag með Jamaraqui sem er frekar gott og flott! Og svo kemur svona kafli sem segir dúrúdúdúdúdúdúrúdúdúrú!!! Sem þýðir bara ekkert annað en hreindýr, hreindýr, hreindýr, hreindýr!!! (ég er sko að syngja lagið þegar ég skrifa þetta, vonandi þekkiði það þá er auðveldara að fattetta með dúdúið
Þetta er örugglega farið að hljóma svona eins og ég sé algjör geðsjúklingur en mér fannst þetta bara svo fyndið allt saman þegar að ég komst á þessu. Ég á t.d. geisladisk með honum Jux sem er bara alveg feiknargóður, hann er alveg snillingur að búa til tónlist og ekki síðri að mixa lögin sem hann vinnur með. Hann er t.d. að fara að spila í Tivoli þann 1.ágúst á svona einskonar grænlenskum dögum, þannig að allir þeir sem verða í Köben og á leiðinni í Tivoli á þeim tíma, endilega kíkið á hann, ég lofa þið verðið ekki fyrir vonbrigðum. Þið getið líka bara komið í heimsókn til mín og fengið að heyra geisladiskinn hans
En stóri dagurinn er runninn upp hjá mér SÁLIN Á NASA Í KVÖLD!! Nú er það bara að taka fram dansskóna og tjútta í alla nótt, eða alla næstu nótt
EN ég held að ég hafi bara ekkert meira að segja í dag.... Eða semsagt nótt.... Nú er það bara að bíða eftir að vaktin verði búin og svo fer maður heim að sofa til svona 3 og svo rölta niðrí bæ að kaupa miða á ball og í "mjólkurbúðina"!!! JE BEIBÍ!!!
Knus og Kram!!! Bryndís
Þetta er tileinnkað öllum þeim sem ætla á ball á föstudaginn á NASA!!!
Hverjir ætla að fara?!?!?!?!?! Kommenta!!!!!
En svona til að rifja upp texta fyrir ballið þá er ég búnað vera með þetta lag á heilanum alla síðustu viku og ef ég er á MSN þá sjáiði að ég er alveg að fíla þetta lag í tætlur! Ætlaði meira að segja að láta skólahljómsveitina mína spila þetta í dk en þá fundust engir hljómar af laginu,....BÖMMER!!! En hvað um það.... Here it comes
Öll sem eitt
[lag: Guðmundur Jónsson / texti: Friðrik Sturluson]
Við höfum frétt að nú sé fjandinn laus,
mannfólkið hefur fengið flugu í haus,
þau hafa dýrmæta sál, heyrið, öll sem eitt.
Öll sem eitt
Þar sem við megum ekki miss´af þeim
þær mala gull, við bjóðum hættunni heim.
Þið fyllið botnlausa hít, heyrið, öll sem eitt.
Öll sem eitt.
Þið skuluð hugs´um ykkur sjálf
á meðan tím´er ennþá til.
En enginn flýr sín örlög.
Þið vitið kannski nú hvað klukkan slær.
Með hverjum takti færist endirinn nær.
Þið hafið tilgang á jörð, heyrið, öll sem eitt.
Öll sem eitt
Það þarf að taka fast í tauminn hér
því tækifærum óðum fækkandi fer
og núna þurfum við þau öll sem eitt.
BARA STUÐLAG!!!!!
Hey hó
En allavegana, ég sit hérna heima VEIK, já veik.... Það er sumar, maður á ekki að vera veikur á sumrin. Ég vaknaði bara í gær með alveg rugl slæma hálsbólgu!!! Þvílíkt bólgna eitla í hálsinum og mér líður bara ekkert sérlega vel. Það er tæpt á því að ég geti borðað og það að hreyfa á mér hálsinn er meira að segja óþægilegt!!
En jæja... Viljiði ekki bara kalla á vælubílinn fyrir mig
Ekkert nýtt í fréttum, maður er að reyna að draga fólk með sér á Sálina þann 14.júlí á nasa!! Mér langar frekar mikið!!! Og allir þeir sem vilja fara!! CALL ME!! Og ekkert vera að fara á Bryggjuhátíð á STokkseyri, Sálin er sko ekkert að spila þar
En hvað um það..... Heyrumst... bleble


Sporðdrekinn er ráðríkur og stjórnsamur, sérstaklega hvað varðar eigin líf. Þar vill hann helst ráða öllu. Fyrir vikið er hann valdasjúkur, hvað annað? Sporðdrekinn er fastur fyrir og vill komast til botns í því sem vekur áhuga hans. Hann beinir því mikilli og sterkri athygli að áhugasviðum sínum, sem leiðir í sumum tilvikum til þráhyggju og einhæfni. Eitt mál á alla athyglina. Ekki er hugsað eða talað um neitt annað og fyrir vikið á Sporðdrekinn til að verða ansi þreytandi.