Bloggíbloggí
En ég og Fina lentum í smá pípulagningarvandræðum um daginn, eða réttara sagt fyrir viku síðan. Vaskurinn var búinn að vera alveg ótrúlega mikið stíflaður e-ð og ég var e-ð að hamast á niðurfallinu með okkar fína drullusokk. Svo allt í einu, plúbb!! Og það kom vatn flæðandi innan úr skáp og útum allt eldhúsgólf, og lyktin!!! OJJJBARA!!! Fina hringdi strax í mömmu sína til að spyrja hana hvort að hún vissi um e-n pípara til að koma að plögga þetta fyrir okkur, en í staðin fyrir það þá sagði hún okkur bara hvað við ættum að gera og það endaði þannig að við tókum öll rörin í sundur undir vaskinum og það var vel skiljanlegt að hann hafi verið stíflaður. Þá hafa þessir „yndislegu" iðnaðarmenn okkar verið það sætir í sér að hella fúusementinu (eða hvað sem það nú heitir, pabbi veit það betur), í vaskinn okkar sem var auðvitað ekki í það mikilli notkun á þessu tímabili, þannig að það hefur náð að harðna svona fallega, að þegar við tókum rörin í sundur og skoluðum þau þá komu bara feitir „steypuklumpar" útúr rörunum og svona líka rosalega mikið illa lyktandi!!! Við ætluðum svo aldrei að fá helvítis rörin til að hætta að leka en það tókst loksins og núna rennur bara ljúft niður í niðurfallið, þvílíkir snillingar sem við erum
Verð nú samt að viðurkenna að það hefði verið voða ljúft að hafa hann pabba hérna hjá mér til að hjálpa okkur
En annars er allt bara svona við sama heygarðshornið. Sólin skín bara meira en minna, reyndar doldið skýjað í dag og spáð skúrum en það er nú bara gott fyrir gróðurinn. Við fórum í Fælledparken á föstudaginn 1.maí, Theis vinur minn var að spila í einu tjaldinu þar, en það er fullt af tjöldum þarna frá stjórnmálaflokkum og verkalýðsfélögum og svo eru svið þar sem eru ræður og tónlist og svoleiðis, rosa fjör. Það var svo mikið af fólki þarna að það var varla hægt að labba um án þess að labba á einhvern. En ég náði mér allavega í nokkrar freknur og smá lit, þetta mjakast... sko liturinn Fann mér líka geggjað bikini um daginn sem að ég hreinlega varð bara að fjárfesta mér í, sérstaklega þar sem að það passaði svona fínt.
En annars styttist bara í að ég komi heim eina helgi í maí. Get því miður ekki lofað því að ég eigi eftir að hitta mikið af vinum og kunningjum, enda verð ég bara frá föstudagskvöldi til mánudags og þetta verður frekar bissý helgi. En ég er svona farin að skoða flugför heim í ágúst, er jafnvel að pæla í að koma heim í byrjun ágúst og kanski, bara kanski, kíkja á Þjóðhátíð á sunnudeginum, en það kemur allt saman í ljós bara með tímanum.
En held að ég segi ekki mikið meira í bili.
Bryndís
Bryndís and Fina go plumbing!!
En annars er bara sól og sumar hérna í Kaupmannahöfninni! Ekki hægt að segja annað en að maður er að reyna sitt besta til þess að fá sem mest af freknum og kanski reyna að hækka húðlitinn um 1 eða 2 level frá NEONHVÍTU!!!
En já, svo styttist í mjög stutta heimkomu, en þó heimkomu!! Get ekki lofað að ég eigi eftir að hitta mikið fleira fólk en fjölskylduna og nokkra vini, kem á föstudagskvöldi og fer á mánudeginum takk fyrir pent, en hlakka samt voða til :-)
En annars er ég búin að ákveða það að fara í söngnám eftir Hjúkkuna, eða haustið 2010 og taka kennararéttindin með. Þannig að ég verð búin að því svona 2014 eða e-ð álíka. Fór nefninlega í masterklasstíma hjá CVT - Complete Vocal Tecnique og fékk svo einkatíma hjá einum söngkennaranum þar og hlustaði á masterklasstíma. Ég varð gjörsamlega veik!! Langaði bara að byrja strax, og það hjálpaði ekkert til þegar ég fékk svo jákvætt svar við umsókninni minn STRAX daginn eftir að ég sótti um. Kennarinn var algjör dúlla, hrósaði mér alveg í hástert og það er svo gaman að fá viðurkenningu fyrir því sem maður gerir og sérstaklega þegar það er áhugamálið manns sem maður virkilega elskar!! Þannig að þetta er ég búin að ákveða. Þannig að ég verð hjúkka/söngkennari!! Hljómar vel ekki satt????? Ég er allavega geðveikt spent og hlakka geggjað til að byrja!! Þarf bara að fara að safna pening fyrir þessu, þar sem að þetta er frekar dýrt.... en það mun örugglega reddast
en jæja, segi ekki meira í bili
Kveðja úr sólarKöben
Bryndís
Jæja... flutt og á leið til Glasgow...
Ég er búin að vera sveipuð verkamönnum hérna, smið og rafvirkja og bara you name it :-) En ég er allavega komin í herbergið mitt og það var svo ljúft að sofa í rúminu mínu aftur !!! bara algjör draumur.
En það er bara komið sumar og sól hérna í DJÉKÁ! Er búin að vera úti í allan dag með Brynju og Valdísi, fór í ræktina um hádegisbilið og svo fórum við í Kongens Have og svo eftir það fórum við niður á Islands Brygge í pylsuparty hjá e-m íslenskum stelpuklúbb e-ð glamour eða e-ð álíka. Kannaðist við nokkur andlit þarna en þekkti svosum engan annan en Brynju og Valdísi en við fengum samt sem áður, SS pylsur og SS Sinnep :-) Núna er maður bara þreyttur eftir að hafa verið úti allan daginn í þessari sól en það er bara ljúft!! :-)
Svo er bara málið að fara að pakka bráðum og svo auðvitað kaupa haug af saltlakkrís handa systir og svo er ég barasta flogin til Glasgow my dears!!!
En ég var í 2 prófum núna í vikunni sem að ég náði sem betur fer. Annað var svona hópverkefnispróf og svo sjúkrapróf afþví að ég var veik um daginn þegar ég átti að fara í próf, þannig að núna er ég bara komin í frí til 20.apríl, ég var bara með bölvað samviskubit í dag afþví að mér fannst ég endilega eiga að vera að læra eða e-ð svoleiðis afþví að maður er búinn að vera ansi djúpt sokkinn í skólabækurnar upp á síðkastið, en það er gott að þessi modull er búinn... var frekar leiðinlegur sko. Það er alltaf að renna betur og betur upp fyrir mér að eftir rúmt ár þá verð ég orðin hjúkrunarfræðingur!!! SJÆSA!!! það er doldið fullorðið að vera orðinn e-ð eftir rúmt ár og ég ennþá bara 18!! ;-)
En jæja.. vildi bara láta heyra aðeins í mér....
Skrifa við fyrsta tækifæri aftur elskurnar
Kossar og knús frá DJÉKÁ
Bryndís
What room can´t ghosts go in to? The Living Room!!!
Statusinn hjá mér núna er þannig að ég er ennþá heima hjá Sidsel mömmu hennar Finu útaf baðherbergismálum. Við fengum að vita í seinustu viku að við gætum mjög hugsanlega farið að gera hreint í íbúðinni núna um helgina og flutt inn í næstu viku! Við urðum auðvitað alveg þvílíkt upprifnar yfir þessu en tókum þessu nú samt með fyrirvara! Þar sem að það er búið að lofa gulli og grænum skógum oftar en einu sinni þá er ekki gott að búast við of miklu af þessum fínu herrum.
Við fórum svo upp í íbúð í gær með gulu gúmmíhanskana, reddý í þrif EN NEI... þar var múrarinn á fullu að leggja flísar og var mjög pirraður út í Hakim, sem er aðalkallinn í þessu veseni, útaf því að hann náði ekki í hann og gat í rauninni ekki haldið meira áfram útaf því að honum vantaði gólfflísarnar og e-ð meira! GREIT!! Þannig að ekki var hægt að gera hreint og verður örugglega ekki hægt að gera hreint fyrr en í fyrsta lagi í lok næstu viku, sem er alveg einstaklega ópraktískt fyrir mig þar sem að ég er að fara að flytja verkefni í vikunni eftir það og svo er ég líka að fara í próf 2.apríl, þannig að næsta vika verður bara eintómur lærdómur út í eitt og lítið meira en það.
En ég er byrjuð að vinna á Herlev Hospital deild D-113 sem er almenn skurðdeild, neðanverður meltingarvegur s.s eins deild og ég var að vinna á á lansanum. Er alveg að fýla þetta í tætlur og fæ að gera helling meira en ég er vön þarna heima sem sjúkraliði þannig að það er alveg eðal!! Ég er þarna aðra hverja helgi og svo tek ég smá extravaktir ef að ég get og ef að þess þarf, bara svona til að bæta budgettið aðeins :-)
Annars er vorið bara komið til Danaveldis, síðasta vika búin að vera ljúf, sveipuð sól og blíðu með dassi af roki og smá kulda, ekkert alvarlegt og það skaðar aldrei að hafa smá rok með, það er allavega ekkert sem að sólin getur ekki bætt:-) Ég og Fina erum búnar að vera hangandi niðri í bæ bara að rölta á strikinu, horfa á fólk, borða ís og bara njóta lífsins þar sem að skólaleiðinn er alveg að drepa mig á mjög háu stigi núna. Held að þetta sé e-ð að ganga núna, það eru allir að mygla í skólanum finnst mér. Mig langar bara mest að pakka niður í tösku og fara e-rt í sól og blíðu. Það eina sem heldur mér gangandi er það að næsta önn verður BARA verknám í hálft ár og svo erða Bachelorskrif í hálft ár þannig að það verður enginn skólabekkur meir eftir að þessi önn er búin sem er bara sweeeeet!! Auðvitað verður maður samt að læra og solliss en bara það að þurfa ekki að vera í skólanum er e-ð svo næs tilhugsun.
Ótrúlegt en satt þá er ég búin að vera ansi róleg síðustu 2 helgar, seinustu helgi var ég jú að vinna og svo núna um helgina voru Fina og Sidsel að passa 2 litla grænlenska stráka, sem tala bara grænlensku og hund, þannig að föstudagskvöldið og laugardagurinn fóru bara í að dúllast með þessum krúttum. Þar sem að ég skildi jú ekki BOFFS af því sem að þeir sögðu þá skiptist ég bara á með að tala íslensku og dönsku og það fyndna við það var að eldri strákurinn apaði bara eftir mér þegar ég sagði e-ð við hann á íslensku, þá sagði hann bara það sama á íslensku frekar skondið. Það fyndasta var samt eiginlega að hvorki Fina né Sidsel tala svo góða grænlensku og þær skilja langt í frá allt það sem að sagt er á grænlensku þannig að það var svona happa og glappa hvort að þær skildu þessi grey:-)
En annars er bara allt við það sama hérna, hlakka bara ótrúlega til að komast heim í íbúð í allt dótið mitt og svo er ég auðvitað að koma heim í maí, en þó bara eina helgi þannig að það verður ekki mikið gert annað en að hitta fjölskylduna og vonandi nær maður að hitta e-ð af vinunum líka, en annars ætla ég líka að koma heim í ágúst í 2 eða 3 vikur.
Segi ekki meira í bili og allir að kvitta!!!! :-)
I´m Royalty!! Yes I AM!!!
Ég sit hérna á Konunglega Bókasafninu í Kaupmannahöfn og er meira en minna búin að vera að læra í allan dag, eða svona síðan ca. 09 í morgum! Ákkúrat núna er ég í koffeinkasti, get varla setið kyrr og geri allt annað en að sitja og lesa og læra, heldur sit ég og geri e-ð í tölvunni og horfi á fólkið í kringum mig. Það eru nefninlega allir að fara, eða allavega mjög margir og þá skapast svona örlítið skvaldur í lessalnum, fólk að taka saman dralsið sitt og skila bókahöldurunum og svona sniðugt! Og þegar ég er í koffeinkasti þá þarf lítið til að trufla mig, er meira segja ótrúlega stutt frá því að fara bara að skella upp úr af engri sérstakri ástæðu ;-) Eins og ég segi... nett rugluð....
Við skiluðum verkefninu okkar í dag, fengum okkar seinasta leiðbeinandatíma á föstudaginn og leiðbeinandinn hafði ekkert neikvætt að segja við okkur, þannig að núna er bara eins gott að fara að hafa stjórn á hlutunum sem maður á að kunna utanbókar á miðvikudaginn! Jebbsídebbsííí..... Svo er maður bara komin í langt helgarfrí frá og með því þegar maður er búinn í prófinu.
Mín fyrsta vinnuhelgi var núna um helgina. Þetta er svona deild eins og ég var að vinna á þegar ég var á Lansanum, almenn skurðdeild-neðanverður meltingarvegur. Gott að geta farið á deild þar sem maður kann e-ð aðeins. Auðvitað er þetta allt öðruvísa hérna úti en heima, sjúkraliðarnir fá t.d. að gera miklu meira hérna úti en þeir fá að gera heima, þannig að ég fæ að skipta á sárum og sprauta og sonna fjör!! Það lífgar töluvert upp á daginn að fá að gera svoleiðis skemmtiefni! :-) Best að vera réttu megin við sprautuna ;-) En ég var alveg búin eftir helgina get ég sagt ykkur, er sko ekki í vinnuformi. Úffpúff... var sko frekar mikið að gera og ég var alveg uppgefin þegar ég svo komst heim og náði auðvitað að sofa örlítið yfir mig í dag, en samt ekkert alvarlega, kom ekkert seint eða neitt :-)
En jááááá...... ætli það sé ekki best að fara að læra meira... vona að kaffiofvirkning fari að dvína aðeins... skilja svo eftir komment góða fólk....
Brilla
privacy.....
Annars er bara allt við sama heygarðshornið, er núna bara í verkefnavinnu og svo er próf eftir viku úr verkefninu, munnlegt aftur! Þannig að núna snýst þetta allt saman bara um að standa sig í stykkinu og reyna að rúlla þessu upp, spurning um að gera bókasafnið bara að sínu öðru heimili.
Ég fór á sveitaball á föstudaginn með ÁMS og einhverjum DJ-um og það var alveg ógisslega gaman. Fór með Írisi, Brynju, Valdísi og Rakel og þeirra kærustum og vá þetta var bara snilld. Við vorum með smá gítarparty heima hjá stelpunum fyrir ballið sem samanstóð bara af okkur 5 stelpunum, en þrátt fyrir það var alveg ógisslega gaman!! Því miður náði ég að skemmileggja myndavélina mína með því að missa hana í gólfið, þannig að hún er dáin greyið. Svo fórum við Fina í innflutningsparty hjá Baibu í gær, ég var nú bara þæg stelpa og fór snemma heim og restin af fólkinu fór niðrí bæ. Það var nú samt alveg týpískt þegar við ætluðum að fara að hjóla af stað til Baibu þá var bara komin brjáluð snjókoma og allt þakið í snjó, þannig að við skildum bara hjólin eftir heima, ekkert sniðugt að vera að hjóla í svona lausum snjó með hálku undir...... Er orðin doldið þreytt á þessu veðri, mig langar bara að fara að fá vor og hlýju.
En held að ég segi ekki meira í bili.. ætla að fara að kíkja aðeins í skólabækur og skrifa aðeins í þessu verkefni.
Kv. Bryndís
Århus, dejlige Århus....
Getum nú svosum sagt að við höfum ekki gert e-ð rosalega mikið meira en að djammast því við fórum aftur á djammið á föstudaginn og þar hittum við meðal annars Atla Má og e-n vin hans. En svo á laugardeginum fórum við heim til Fríðu og Sigurgeirs og vorum að horfa á gamlar fjölskyldumyndir, úr afmælum og svoleiðis, bara gaman að sjá þetta allt saman :-) Vorum frekar ákveðnar ungar dömur sem að gátum alls ekki verið 3 að leika, urðum að vera 2, enda mörg rifrildin sem við áttum.... hahaha.... snilld...
Við skelltum okkur svo í keilu á laugardagskvöldið með Gitte og Ali, en Ali er frá Tyrklandi og hafði aldrei á ævinni farið í keilu!! Hann vann samt!!! Hvað er málið með það??? Er það bara e-ð skrifað í stjörnurnar að allir strákar eigi að kunna allar íþróttir og vera góðir í keilu og vinna?? Svindl....
Og nú man ég ekki hvort að ég var búin að skrifa það en ég náði semsagt verknáminu, en umsögnin mín var svosum ekkert sú flottasta sem að ég hef fengið en skítt með það.... Það verður bara að hafa það. Það sem ég er búin að gera núna er að ég skrifaði 2ja síðna langt kvörtunarbréf til skólans og til yfirmanns kellingarinnar sem að ég er svo búin að senda. Veit ekkert hvað á eftir að koma út úr því eða hvort að það á e-ð eftir að koma útúr því. Finnst bara ekki að skólinn eigi að senda nemendur út á svona staði, sérstaklega ekki þegar þeir eru með svon lélega kliniska leiðbeinendur.
En núna er ég formlega HÁLFNUÐ með námið. Búin með 1.5 ár og á 1.5 ár eftir... sjæsa.... Er komin í skólann aftur á e-n rosa TÚRBÓ modul með 2 prófum. Og auðvitað munnlegum... ohh.. er strax orðin stressuð fyrir því.... En vonandi gengur þetta allt saman bara ágætlega upp.
En já, held að ég segi ekkert meira í bili. Og svona in case, ef að þið eruð að velta því fyrir ykkur... ekki trúa öllu sem að þið sjáið á facebook :-) þó að ég sé no longer listed as single þá er ég ennþá single my darlings. Ekki nema Robert Pattinson skelli sér til DK og biðji mín eða e-ð ;-) hahaha....
En já, segi ekki meira í bili...
Kv. Bryndís
Náði prófinu! Århus og Glasgow á næsta leyti!!
Ég er hins vegar búin að vera í bölvuðu basli með kliniska leiðbeinandann minn... hún er bölvuð TÍK ef svo má að orði komast, og þetta er sko pent sagt!! Hún er búin að hóta mér að fella mig og bara afþví að ég hef ekki verið nógu spyrjandi!! Hef hinsvegar alveg frábæran kontakt með sjúklingunum og journalskrifin mín eru mjög svo fín!! Vá, hún eyðilagði algjörlega fyrir mér seinasta fimmtudag, ég grét eins og versti smákrakki, var ekki að hjálpa með einbeitinguna hjá mér þegar átti að fara að læra undir próf!!! Hún gjörsamlega hellti sér yfir mig og það ekki á góðan hátt, það er ekki gaman að fá að heyra svona marga neikvæða hluti um sjálfan sig þegar maður hefur alltaf verið vel metinn í starfi og í verknámi. Hún gjörsamlega greindi mig, minn persónuleika og bara mig sálfræðilega!!! Vá, bara óþægilegt!!
En sem betur fer á ég bara eftir 2 daga þarna hjá þessari beyglu og þá er þessi hræðilega vika búin og ég get farið aftur í skólann.... best að reyna að standa sig!!
Ég er svo að pæla í að skella mér til Århus helgina 5-8.feb, þar sem að Gulla verður komin heim frá Ástralíu og svo er íslendingaþorrablót þarna 7.feb sem ég ætla að skella mér á, allavega á ballið með Emmu og Atla og örugglega e-m fleirum!! :)
En annars var ég að splæsa mér í miða til Glasgow yfir páskana til hennar elsku systur minnar! Fékk miða á litlar 12.000 ískr, bara sweet!! Komst nefninlega að því að ég er í 2ja vikna fríi þarna frá 3.apríl til 19.apríl!! Þannig að ég ákvað bara að skella mér til Skotlands til systur í staðin fyrir að fara til Íslands. Langar svo geðveikt að sjá allt þetta sem að hún er að upplifa og gera og bara sjá og gera e-ð nýtt og öðruvísi! Þetta verður bara fjör!!
En já... nú veit ég bara ekki hvort að ég hef e-ð meira að segja í bili! Lífið er farið að ganga betur en það gerði í byrjun ársins og vonandi fer það bara batnandi.
Knús og kossar frá Køben
Bryndís
Jáh...svona er maður nú mikil íþróttamanneskja..;-)
Maður græðir ýmislegt á því nefninlega... ég er búin að vera í alveg sérdeilis vondu skapi síðan ég kom heim í dag... ekki viðræðuhæf og langaði helst bara að snappa að Finu áðan þegar hún kom heim í 5 mín, en ég lét það vera..... Græði ekkert á því... Þannig að eftir að ég var búin að sitja og skrifa e-ð helv*/)=#= verkefni (sem að maður fær hvorki einkunn né náð/ekki náð fyrir, bara e-ð sem að helv*"$! leiðbeinundunum finnst svo gaman að kvelja okkur) ákvað ég að googla nafnið mitt þarna kom upp allskonar frá því að ég útskrifaðist, þegar ég var í 3.sæti í söngkeppni F.Su með Ingó og heimasíðan mín og svona ýmislegt. Það sem að gladdi mitt litla hjarta þó allra mest var þetta:
Upplýsingar úr afrekaskrá Frjálsíþróttasambands Íslands
Unnið úr gagnasafni Frjálsíþróttasambands Íslands
Bryndís Erlingsdóttir, Ófélagsb
Vallholti 41
800 Selfoss
Fæðingarár: 1985
Ýmis götuhlaup.
Úrslit flestra götuhlaupa síðustu ára er að finna á hlaupasíðu Torfa Helga Leifssonar
Dags. Heiti hlaups Km. Tími Röð Flokkur Röð í fl
05.09.92 Brúarhlaup Selfoss 1992 - Hjólreiðar 10 Km 10 47:40 202 12 og yngri 57
04.09.93 Brúarhlaup Selfoss 1993 - Hjólreiðar 10 Km 10 38:24 288 12 og yngri 84
03.09.94 Brúarhlaup Selfoss 1994 - Hjólreiðar 10 Km 10 42:43 310 12 og yngri 86
02.09.95 Brúarhlaup Selfoss 1995 - 2,5 Km 2,5 19:32 109 12 og yngri 28
05.09.98 Brúarhlaup 1998 - 5 km. hjólreiðar 5 16:53 90 13 - 17 ára 3
Sko, mín bara í gagnasafni Frjálsíþróttasambands Íslands!!! Bwahahahahaha!!!!!!! Vantar bara öll Grýlupottahlaupin mín þarna inn!! :-) En þarna sjáið þið einnig að ég hef ekki verið með í Brúarhlaupinu síðan 1998, sem var s.s. fyrir 11 árum!!! Sjett maður... En þetta eru þvílík afrek... Minn besti tími hefur semsagt verið þarna 1995 í 2.5 km hlaupi eða ss. á aðeins 19mín og 32sek og aðeins nr 109 í röðinni!! Nohh... djöfulls dugnaður ;-) Hef sjaldan séð jafn framúrskarandi árangur hjá einni manneskju í íþróttum... hahaha... sammála??? Ég reyndar hjólaði þarna 5 km á 16:53 og komst þá í topp 100.. númer 90 sko;-) hahaha....
http://web2.toto.is/fritest/afr/keppendur/kep8619.htm
Verst að það skuli ekki vera neitt svona með kóramótum og kórbúðum og kórakeppnum og solliss... það yrði örugglega mikið lengra en þetta....:-)
En svona til að þið getið fengið smá slúður þá fór ég á deit á miðvikudaginn!! Sko mína... haha... greyið strákurinn var svo feiminn að ég þurfti algjörlega að halda upp samræðum VIÐ SJÁLFA MIG!! Eða svona næstum því. Var e-ð að reyna að halda uppi samræðum um fótbolta og handbolta og hvort væri skemmtilegri íþrótt!! hahaha!!! Já.. maður lærir sko ýmislegt um fótbolta og handbolta þegar maður hefur átt kærasta sem voru svona íþróttafrík.... ég veit meira að segja hvað rangstaða er maður!! ;-)
En já, það má segja að þetta hafi ekki alveg verið að virka... samt besta skinn greyið strákurinn :-)
En annars er bara nóg að gera, það á að byrja á baðherberginu á miðvikudaginn og ef að þeir byrja ekki þá, þá fer ég og helli mér yfir helvítis kallinn!! Nenni ekki þessari eilífu bið alltaf hreint... arrggg.... þarf líka að pakka og plasta herbergið og e-ð!! Vesen.. en þetta verður voða ljúft þegar þetta er loksins búið, svo er próf 28.jan og svona hálfgert próf 22.jan þannig að það er í nógu að snúast.....
En jæja... held ég segi ekki meira... KVITTA TAKK FYRIR PENT :-)
Berlings
Mætt í Baunaland:-)
Maður gerði nú lítið núna í fríinu annað en að borða, djamma, horfa á TV og svo flæktist ég til Rvk nokkrum sinnum, fyrst til að versla og svo bara til að dúlla mér og svo til að hitta hann Toby minn, Dodda og Jónínu:-) Það var ósköp ljúft þó svo að ég og Jónína höfðum beilað stórt á Bláa Lóninu en við tímdum bara engan vegin að borga 2800 KR !!!!! Til þess að fara í e-ð vatn, þannig að Jónína kom aðeins seinna en við, þannig að ég hoppaði bara uppí bíl til hennar og við brunuðum aftur í Rvk. Ágætis bíltúr það ;-) Og svo þegar strákarnir voru búnir í Bláa þá skutluðu þau mér á Selfossið góða :-)
En það má allavega segja að ég hafi tekið vel á því á djamminu um jólin, lét ekkert djamm framhjá mér fara og fór á öll þau böll sem ég gat mögulega farið á ;-) Labbaði meira að segja heim úr Hvíta Húsinu á Nýársnótt og það var sko BRJÁLAÐ veður!! Dísús var mér kalt þegar ég kom heim!! Svaf sko í fullt af fötum og með sæng og teppi!! brrr.... hélt sko að lærin á mér myndu detta af ;-)
En já, þetta var voða ljúft frí sem endaði þó með alveg hræðilegum fréttum :-(
En ég vil nota tækifærði og Óska honum Gunnari Hrafni dúllu frænda mínum innilega til hamingju með 1ns árs afmælið!!!
En held að ég segi ekki meira í bili.
Kv. Bryndís

